Höfuðborgin sem þjóðgarður: Arfleifð til komandi kynslóða Ágústa Ágústsdóttir skrifar 29. janúar 2021 08:00 Komið með í smá ferðalag. Ímyndum okkur að við hoppum fram í tíma og göngum út úr tímahylkinu stuttu eftir alþingiskosningar 2020. Ríkisstjórnarmyndun er staðfest og stjórnarsáttmálinn nýsmíðaður lítur dagsins ljós. Þar stendur m.a. „Stofna skal Miðborgarþjóðgarð sem mun þekja rúmlega 30% höfuðborgarsvæðisins.“ Yfirsmiður frumvarps um Miðborgarþjóðgarð, umhverfis- og samgönguráðherra (vegna hagræðingar og til einföldunar í stjórnsýslu voru þessi ráðuneyti sameinuð undir einn hatt) er ráðinn sérstaklega inn á þing án þess að hafa fengið lýðræðislega kosningu þjóðar í nýafstöðnum kosningum. Að því loknu sest hann inn á smíðastofuna sína og syngur glaður á meðan hann vinnur „Ég negli og saga og smíða mér garð.............“. Tíminn líður og þegar glittir í lok kjörtímabilsins birtist frumvarpið. Meðal lofræða um þjóðgarð er þessi hér: "Garðurinn verður þjóðargersemi, mun skapa umgjörð þar sem núverandi og komandi kynslóðir hafa gagnsæjan, lýðræðislegan og fyrirsjáanlegan vettvang til að taka ákvarðanir um hvernig best sé að vernda auðlindir miðborgarinnar og nýta þær á sjálfbæran hátt. Verndun náttúru- og menningararfsins fær loksins heildstæða umgjörð sem er grundvöllur þess að sátt geti myndast um sjálfbæra nýtingu og atvinnustarfsemi á svæðinu. Við setningu laga um Miðborgarþjóðgarð verður hann ekki fullmótaður en útfærsla hans, málamiðlanir og umræður halda áfram fram að og eftir formlega stofnun hans." Í frumvarpinu segir m.a.: „Allt landsvæði Miðborgarþjóðgarðs skal vera í ríkiseign.“ „Miðborgarþjóðgarði er heimilt að fengnu samþykki ráðherra að taka eignarnámi land, mannvirki og réttindi til að framkvæma friðun sem lög þessi mæla fyrir um.“ „Miðborgarþjóðgarður er ríkisstofnun og fer ráðherra með yfirstjórn mála er varða þjóðgarðinn.“ „Þá skal stjórnunar- og verndaráætlun einnig ná til jaðarsvæða þjóðgarðsins.“ „Miðborgarþjóðgarði skal skipt upp í a.m.k. sex rekstrarsvæði samkvæmt ákvæðum í reglugerð sem ráðherra setur og munu þar sitja sex þjóðgarðsverðir og aðstoðarþjóðgarðsverðir á fullum launum hjá ríkinu.“ „Stjórn þjóðgarðs fer með endanlegt vald en í umdæmisráðum rekstrarsvæða munu tugir fulltrúa eiga sæti sem ríkisstarfsmenn og funda reglulega um málefni síns svæðis. En stjórn þjóðgarðs tekur síðan endanlega ákvörðun um öll mál.“ „Ef ráðherra telur að einstaka íbúðagötum eða hverfum stafi sérstök ógn af akandi umferð er honum heimilt að loka fyrir alla slíka umferð allt árið um kring og breyta viðkomandi svæðum í göngugötur.“ Ráðherra hefur einnig viðrað þær skoðanir sínar ásamt Umhverfisstofnun og náttúruverndarsamtökunum Borgarvernd í allmörg ár að nauðsynlegt sé að friða sérstaklega viðkvæm svæði fyrir ágangi, eins og t.d. Öskjuhlíðina og Nauthólsvík. Náttúrunni stafi ógn af eftirfarandi: Innfluttum og framandi tegundum, t.d. kanínum og alaskalúpínu, sem hefur raskað og ógnað lífríki svæðisins. Sandfokshættu á svæðinu. Skógrækt. Virkjun jarðhita sem finnst á svæðinu og raski samfara því auk utanvegarakstri. Mælt verður með því að inn á svæðið verði aðeins heimiluð gangandi umferð og að kvótatakmörkun verði sett á fjölda fólks inn á svæðið. En talið er að of mikil uppbygging vega og stíga muni geta leitt af sér aukna umferð ökutækja, sem þá getur raskað upplifun fólks á svæðinu. Núverandi akvegi sem liggur með Öskjuhlíðinni og inn að Nauthólsvík verði lokað en unnið verði að uppbyggingu bílastæðis fjarri svæðinu og náttúrulegur göngustígur lagður. Skoðað verður í framtíðinni hver aðkoma hjólreiðafólks geti verið inn á svæðið en lagst er gegn slíkri umferð eins og er. Einnig verður sett á fót sérstök nefnd sem mun fara með það hlutverk að kenna villikanínum að lesa á upplýsingaskilti sem sett verða upp í þeim tilgangi að upplýsa um verndun svæðisins. Þetta gæti skipt sköpun við að vernda svæðið fyrir ágangi þeirra. Laugaveginum og miðbæ Reykjavíkur verður lokað öllum nema gangandi vegfarendum til að tryggja ferðamönnum sem besta upplifun af svæðinu. Sækja verður sérstaklega um leyfi fyrir að fara um svæðið á reiðhjóli. Ekki hefur verið unnin nein kostnaðar- uppbyggingar- eða rekstraráætlun um fyrirhugaðan Miðborgarþjóðgarð. Það er talið ónauðsynlegt að svo stöddu þar sem farið er af stað í þetta göfuga verkefni með friðun náttúrunnar að leiðarljósi sem mun færa komandi kynslóðum stórkostleg tækifæri að bera með sér inn í framtíðina. Orðið „náttúruvernd“ segir allt sem segja þarf ! Stofnun Miðborgarþjóðgarðs yrði krúnudjásn íslendinga sem lýsa myndi öðrum og vera mikil fyrirmynd á alþjóðavettvangi. Við yrðum fyrsta land í heiminum til að breyta höfuðborgarsvæðinu okkar í þjóðgarð. Hugsið ykkur, það yrði eitt sinnar tegundar í ÖLLUM HEIMINUM ! (allavega Evrópu), með vöggu lýðræðis okkar í hjarta þess, Alþingi íslands. Þetta verður bjargvættur íslensku þjóðarskútunnar eftir Covid-kreppuna miklu. Erlendir ferðamenn munu flæða hér inn í massavís, með erlendan gjaldeyri og skapa mikla vinnu. En til að vernda mikilvægar minjar og náttúru borgarinnar mun þjóðarhagkvæmnin best felast í því að halda mesta ferðamannafjöldanum sem næst jöðrum þjóðgarðs og styrkja uppbyggingu innviða þjóðgarðsins þar. Þá verður sett á fót kvótakerfi þar sem rekstraraðilum ferðaþjónustufyrirtækja verður gert kleift að kaupa sér aðgang að. Umhverfisráðherra er sannfærður um að þetta sé vilji þjóðarinnar enda hafi 2 ára gömul könnun gefið vísbendingar um slíkt. Enda sé það alltaf þannig að þegar kemur að náttúruvernd, þá helgi tilgangurinn ávallt meðalið. Höfundur er íbúi og sauðfjár- og ferðaþjónustubóndi við Öxarfjörð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ágústa Ágústsdóttir Hálendisþjóðgarður Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar