Lífið

Page og Portner skilja

Stefán Árni Pálsson skrifar
Elliot Page og Emma Portner saman í New York sumarið 2019.
Elliot Page og Emma Portner saman í New York sumarið 2019. Vísir/Theo Wargo/Getty Images)

Leikarinn Elliot Page og Emma Portner hafa ákveðið að skilja og fara í sitthvora áttina.

„Eftir mikla umhugsun höfum við tekið þá ákvörðun að skilja fyrir fullt og allt,“ segir í yfirlýsingu frá kanadíska parinu en þau ákváðu að skilja á borði og sæng síðasta sumar. BBC greinir frá.

„Við berum mikla virðingu fyrir hvort öðru og verðum áfram góðir vinir.“ Page og Portner gengu í það heilaga árið 2018.

Elliot Page sló í gegn í kvikmyndunum Juno og Inception.

Á síðasta ári greindi Page frá því að hann væri trans. Page kýs að nota fornöfnin he/they, eða hann/hán.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×