Innlent

Kuldinn bítur í kinnar í stífri norðanáttinni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kuldaspákort Veðurstofunnar fyrir tólf á hádegi í dag.
Kuldaspákort Veðurstofunnar fyrir tólf á hádegi í dag. Veðurstofa Íslands

Það verður í grófum dráttum sama veður út vikuna og er hann lagstur í ákveðna norðanátt eins og það er orðað í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Spáð er snjókomu á norðurhelmingi landsins og verður mesta úrkoman um miðbik Norðurlands á utanverðum Tröllaskaga. Sunnanlands verður skýjað með köflum og að mestu úrkomulaust.

Þá er búist við frosti á öllu landinu en þótt frosttölur á mæli verði yfirleitt ekki háar „getur kuldinn bitið í kinnar í stífri norðanáttinni,“ að því er segir í hugleiðingunum.

Veðurhorfur á landinu:

Norðan og norðaustan 10-18 m/s, en sums staðar hvassara í vindstrengjum við fjöll. Snjókoma eða él norðan- og austanlands, en bjart með köflum sunnan heiða. Frost 1 til 7 stig.

Norðan 8-15 á morgun og él á norðurhelmingi landsins, en bjart sunnantil. Frost 0 til 4 stig.

Á fimmtudag:

Norðanátt, víða 10-15 m/s, en sums staðar hvassara í vindstengjum við fjöll. Bjart veður sunnantil á landinu, en él í öðrum landshlutum. Frost 0 til 4 stig.

Á föstudag og laugardag:

Norðan 13-20 og snjókoma eða él, en skýjað með köflum og þurrt að kalla sunnan heiða. Frost 0 til 5 stig.

Á sunnudag:

Norðan 8-15 og dálítil él, en léttskýjað sunnan- og suðvestanlands. Frost 1 til 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×