Spánn og Króatía tryggðu sér toppsætin á meðan Barein komst í milliriðil Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. janúar 2021 18:45 Úr leik Spánar og Túnis í dag. EPA-EFE/Khaled Elfiqi Spánn tryggði sér toppsæti B-riðils á HM í handbolta með sigri á Túnis í dag. Króatar gerðu slíkt hið sama með torsóttum sigri á Katar og þá vann Barein sinn leik.
Spánn hefur þar með unnið báða leiki sína eftir nokkuð óvænt jafntefli gegn Brasilíu í fyrstu umferð mótsins. Sigur dagsins var nokkuð þægilegur en leiknum lauk með 36-30 sigri Spánar. Angel Fernandez Perez fór mikinn í liði Spánar en hann skoraði tíu mörk. Hjá Túnis var Mohamed Amine Darmoul með átta mörk. Króatar mörðu Katar með tveimur mörkum, 26-24, og tryggðu sér þar með toppsæti C-riðils. Leikurinn var nokkuð jafn en Króatar leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, staðan þá 13-11. Munurinn var kominn niður í eitt mark þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka en Króatar skoruðu næstu tvö mörk leiksins og unnu því sanngjarnan tveggja marka sigur að lokum. Manuel Štrlek var markahæstur í liði Króatíu með sex mörk á meðan Frankis Carol Marzo skoraði sjö mörk í liði Túnis ásamt því að gefa sjö stoðsendingar. Að lokum vann Barein sjö marka sigur á Kongó í D-riðli, lokatölur 34-27. Þar með endar Barein í 3. sæti riðilsins og kemst áfram í milliriðil. Halldór Jóhann Sigfússon er þjálfari liðsins og er þar með fjórði íslenski þjálfarinn sem kemst inn í milliriðil á mótinu. Alfreð Gíslason [Þýskaland], Dagur Sigurðsson [Japan] og Guðmundur Guðmundsson [Ísland] höfðu þegar tryggt sér sæti í milliriðlum mótsins.
Handbolti HM 2021 í handbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira