Frost allt að fimmtán stig á landinu og illviðri í kortunum Atli Ísleifsson skrifar 7. janúar 2021 07:16 Hlýnandi, hiti 1 til 7 stig í fyrramálið. Það dregur úr úrkomu eftir hádegi á morgun, en annað kvöld snýst í vaxandi norðlæga átt með snjókomu á köflum og ört kólnandi veðri. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir suðlægri eða breytilegri átt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndu og léttskýjuðu. Þykknar upp vestantil á landinu eftir hádegi og frost þrjú til fimmtán stig þar sem kaldast verður inn til landsins.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í kvöld og nótt gangi í suðvestan þrettán til átján metrum á sekúndu með snjókomu eða slyddu og síðar rigning. Áfram verði úrkomulítið austanlands. „Hlýnandi, hiti 1 til 7 stig í fyrramálið. Það dregur úr úrkomu eftir hádegi á morgun, en annað kvöld snýst í vaxandi norðlæga átt með snjókomu á köflum og ört kólnandi veðri. Á laugardag er útlit fyrir norðvestan illviðri á austanverðu landinu, en nýjustu spár gera ráð fyrir að vindhraði verði víða á bilinu 20-28 m/s á þessum slóðum. Auk þess verður snjókoma á Norðaustur- og Austurlandi, svo þar er útlit fyrir sannkallaða stórhríð. Veðrið verður líklega mun skaplegra á vestanverðu landinu, og seinnipartinn byrjar að draga úr vindi og úrkomu fyrir austan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Kalt er á landinu í dag. Svona lítur spákortið fyrir hádegið út.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðvestan 13-20 m/s og rigning eða slydda, en úrkomulítið A-lands. Hiti 1 til 7 stig. Norðlægari um kvöldið með snjókomu um landið N-vert, en dálitlum éljum syðra. Ört kólnandi veður. Á laugardag: Norðvestan 20-28 m/s, hvassast við A-ströndina, en mun hægari vindur um landið SV- og V-vert. Snjókoma NA- og A-lands, og dálítil él SV-til, annars þurrt að kalla. Frost 2 til 12 stig. Dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið. Á sunnudag: Norðlæg átt 5-13 og léttskýjað, en 13-20 og dálítil él NA-lands fram eftir degi. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt og bjartviðri, en skýjað N- og A-lands. Frost 0 til 10 stig, mildast við S-ströndina. Á þriðjudag: Austlæg átt og skýjað, en léttir til fyrir norðan. Hlýnar í veðri. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðaustanátt með vætu um landið S-vert.
Veður Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Sjá meira