Lífið

Vildi óska að hún hefði ekki skrifað Brokeback Mountain

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Proulx segist hafa tekið að sér að skrifa textann fyrir óperuuppsetningu verksins árið 2014 af ótta við að „einhver hálfviti“ sem vildi hamingju til handa Jack og Ennis myndi breyta endanum.
Proulx segist hafa tekið að sér að skrifa textann fyrir óperuuppsetningu verksins árið 2014 af ótta við að „einhver hálfviti“ sem vildi hamingju til handa Jack og Ennis myndi breyta endanum.

Rithöfundurinn Annie Proulx segist stundum sjá eftir því að hafa skrifað Brokeback Mountain, harmþrungna ástarsögu Jack og Ennis, sem voru leiknir af Jake Gyllenhaal og Heath Ledger í samnefndri kvikmynd.

„Ég vildi óska að ég hefði aldrei skrifað þessa sögu,“ segir Proulx í viðtali við Paris Review. „Áður en myndin kom út var þetta allt í lagi,“ bætir hún við en nú virðist aðdáendur eiga erfitt með að skilja að sagan sé alls ekki um Jack og Ennis.

„[Sagan] fjallar um hómófóbíu; hún fjallar um samfélagslegt ástand, um ákveðinn stað og ákveðna afstöðu og siðferði,“ segir höfundurinn, sem skrifaði söguna fyrir New Yorker árið 1997.

Þolir ekki áhugaspuna

Annie Proulx.Wikimedia Commons/Fuzheado

Proulx segist reglulega fá póst og erindi þar sem aðdáendur óska hamingjuríks endis fyrir kúrekana ólánssömu, eða að minnsta kosti fyrir Ennis eftir að Jack deyr.

Þá segir hún marga hafa endurskrifað söguna með nýjum elskhugum, svo dæmi séu tekin.

Þetta fer gríðarlega í taugarnar á Proulx, sem er síður en svo hrifin af svokölluðum áhugaspuna (e. fan fiction); ef aðdáendur vilji lesa um hamingjusama homma, þá ættu þeir að skálda þá sjálfir.

„Það er ekki sagan sem ég skrifaði. Þetta eru ekki [þínar] persónur. Ég á þessar persónur, samkvæm lögum.“

Rithöfundurinn segir flest bréfana sem henni berast byrja á: „Ég er ekki hommi en...“

Viðtalið við Proulx fór fram á búgarði hennar í Wyoming.

„Ein af ástæðunum fyrir því að við höfum hliðin hérna lokuð er að margir karlmenn hafa ákveðið að sagan ætti að hafa farsælan endi. Þeir geta ekki unað því hvernig hún endar, þeir bara þola það ekki.“

Out greindi frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.