Hæg vestlæg átt með éljum og kólnandi veður Atli Ísleifsson skrifar 5. janúar 2021 07:11 Kaldara veður verður á morgun. Vísir/vilhelm Spáð er fremur hægri vestlægri átt í dag með éljum um vestanvert landið en dálítilli rigningu eða slyddu suðaustantil. Þurrt að mestu norðaustanlands og hiti kringum frostmark.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að á morgun hvessi dálítið úr norðvestri á morgun, fimm til þrettán metrar á sekúndu, en þurrt og bjart veður mest alls staðar, en lítilsháttar él fyrir norðan. Það kólnar um mest allt land þar sem frost verður á bilinu tvö til átta stig. Spákortið fyrir hádegið.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðvestan 5-13 m/s með þurru og björtu veðri, en lítilsháttar él á norðanverðu landinu. Frost 2 til 8 stig síðdegis. Á fimmtudag: Suðvestan 3-8 framan af degi, víða léttskýjað og frost 3 til 13 stig, kaldast inn til landsins. Bætir í vind vestantil á landinu síðdegis, þykknar upp þar með snjókomu og síðar rigningu og hlýnandi veðri. Á föstudag: Hvöss suðvestanátt með rigningu og hita 2 til 7 stig. Snjókoma eða slydda seinnipartinn og ört kólnandi veður. Úrkomulítið á Norðausturlandi og Austfjörðum. Á laugardag: Stíf norðvestanátt. Snjókoma á norðanverðu landinu, él suðvestantil, en þurrt að kalla á Suðausturlandi og Austfjörðum. Frost 3 til 10 stig. Á sunnudag: Norðvestlæg átt með éljum á norðanverðu landinu, en léttskýjað sunnan heiða. Áfram kalt í veðri. Á mánudag: Útlit fyrir norðlægar áttir með dálítilli snjókomu eða éljum fyrir norðan en þurrt og bjart sunnan heiða. Áfram frost um allt land.
Veður Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Fleiri fréttir Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Snarpar vindkviður á Austfjörðum og sunnan við Vatnajökul Varað við hviðum á Austurlandi en blíðu í höfuðborginni Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Sjá meira