Menning

Bein útsending: Belgíska Kongó

Tinni Sveinsson skrifar
Ilmur Stefánsdóttir og Eggert Þorleifsson í hlutverkum sínum í Belgíska Kongó.
Ilmur Stefánsdóttir og Eggert Þorleifsson í hlutverkum sínum í Belgíska Kongó. Borgarleikhúsið

Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á beint streymi í samkomubanni.

Í kvöld er komið að leiklestri á hinu geysivinsæla verki Belgíska Kongó eftir Braga Ólafsson. Eggert Þorleifsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Gunnar Hanson og Hjörtur Jóhann lesa og Stefán Jónsson leikstjóri mætir í spjall á undan.

Um Belgíska Kongó

Frumsýnt í Borgarleikhúsinu í maí 2004 í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Verkið var eitt þriggja sem tekin voru til sýningar í framhaldi af samkeppni á vegum Leikfélags Reykjavíkur.

Efni Belgíska Kongó er í stuttu máli þetta: Rósar, tveggja barna faðir í Reykjavík, og Rósalind, föðuramma hans sem dvelur á elliheimili í höfuðborginni, hafa ekki talast við í sjö ár vegna hálftilefnislauss ósættis í tengslum við íbúð sem Rósalind leigði barnabarnabarni sínu, dóttur Rósars. Einn daginn tekur Rósar þá ákvörðun að sættast við ömmu sína. Hann heimsækir hana á elliheimilið ásamt ungum syni sínum, Hilmari. Sú heimsókn leiðir síðan í ljós hvort tímabært sé að leita sátta eða hvort jafn óskylt fólk og skyldmennin sem um ræðir hafi nokkuð hvert við annað að segja.

Fleira skemmtilegt efni frá Borgarleikhúsinu má sjá á Instagram og Facebook-síðum leikhússins en þær síður eru uppfærðar nær daglega með efni tengdu starfsemi og sýningum. Einnig er hægt að finna atburði leikhússins úr samkomubanninu á öllum helstu hlaðvarpsveitum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.