Menning

Bein útsending: Barnalögin úr leikhúsinu

Tinni Sveinsson skrifar
Úr Bláa hnettinum.
Úr Bláa hnettinum. Borgarleikhúsið

Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á beint streymi í samkomubanni.

Í dag ætla Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Rakel Björk Björnsdóttir og Esther Talía Casey að syngja barnalögin úr leikhúsinu. Útsendingin hefst klukkan 12.

Framundan í Borgó í beinni

Á fimmtudagskvöld klukkan 20 verður fluttur leiklestur á verkinu Belgíska Kongó eftir Braga Ólafsson. Eggert Þorleifsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Gunnar Hanson og Hjörtur Jóhann lesa og Stefán Jónsson leikstjóri mætir í spjall á undan.

Á föstudagskvöld klukkan 20.30 er komið að lokatónleikum Bubba Morthens í samkomubanninu. Síðustu kórónutónleikar Bubba þar sem hann fer yfir vel valin lög og skemmtisögur fyrir sumarfrí.

Á laugardag klukkan 12 les Esther Talía ævintýrið Rauðhetta og úlfurinn. Borgarleikhúsið hefur lagt áherslu á ævintýri fyrir krakkana á laugardögum og heldur því áfram nú um helgina.

Á sunnudagskvöld klukkan 20 verður síðan skyggnst á bak við tjöldin á söngleiknum Bláa hnettinum. Bergur Þór Ingólfsson leikstýrði og sá um leikgerð og Kristjana Stefánssdóttir sá um tónlistina en þau mæta í spjall með Elmari Þórarinssyni á sunnudagskvöldið.

Fleira skemmtilegt efni frá Borgarleikhúsinu má sjá á Instagram og Facebook-síðum leikhússins en þær síður eru uppfærðar nær daglega með efni tengdu starfsemi og sýningum. Einnig er hægt að finna atburði leikhússins úr samkomubanninu á öllum helstu hlaðvarpsveitum.


Tengdar fréttir

Bein útsending: Lögin úr leikhúsinu

Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á beint streymi í samkomubanninu. Í dag er komið að því að listamenn leikhússins flytji þekkt lög.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.