Viðskipti innlent

Flugfreyjur með yfir þrjátíu ára starfsreynslu misstu vinnuna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Flugfreyja hjá Icelandair við störf. Myndin er úr kynningarefni fyrirtækisins.
Flugfreyja hjá Icelandair við störf. Myndin er úr kynningarefni fyrirtækisins. Icelandair

Rúmlega 95 prósent flugfreyja og -þjóna hjá Icelandair missa vinnuna um mánaðamótin þegar uppsagnir rúmlega tvö þúsund starfsmanna flugfélagsins taka gildi. Formaður Flugfreyjufélagsins segir uppsagnirnar fleiri en hún hefði óttast.

Icelandair tilkynnti um rúmlega tvö þúsund uppsagnir í tilkynningu til Kauphallar á þriðja tímanum í dag. Uppsagnirnar ná til allra hópa innan félagsins, en þær hafa þó mest áhrif á störf beintengd framleiðslu, svo sem áhafnir, viðhaldsþjónustu og starfsfólk flug- og farþegaþjónustu. Þeir sem starfa áfram hjá félaginu eru langflestir í skertu starfshlutfalli og aðrir í fullu starfi með skert laun.

43 halda vinnunni

Stærsti einstaki hópurinn eru flugfreyjur og -þjónar en 897 af 940 missa vinnuna. Ákvæði í kjarasamningi flugfreyja segir að að þeim skuli segja upp miðað við starfsaldur.

Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélagsins, segir að meðal þeirra sem missi vinnuna í dag sé fólk með yfir þrjátíu ára starfsaldur.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.Vísir/Egill

Aðgerðir Icelandair koma ekki sem þruma úr heiðskíru lofti. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair hafði sjálfur sagt, síðast um helgina, að stórtækar uppsagnir væru yfirvofandi hjá félaginu. Þær mætti ekki síst rekja til þess gríðarlegar samdráttar sem orðið hefur í eftirspurn eftir flugferðum í kjölfar kórónuveirunnar.

Ljósi punkturinn að fyrr eða síðar þarf að manna flugin

„Ég held að úti í hópnum þá hafi fólk gert sér grein fyrir að það kæmi til uppsagna en ekki af þessari stærðargráðu,“ segir Guðlaug Líney. Þær miði við þá flugáætlun sem sé í gangi hjá félaginu, þ.e. nánast ekkert flug.

„Ljósi punkturinn er sá að um leið og flugáætlun eykst þá þarf að manna flugin. Það er bara spurning hvenær það gerist,“ segir Guðlaug. Þá megi fólk eiga von á endurráðningu þar sem farið verði eftir starfsaldri og frammistöðu.

Flugvél Icelandair kemur með læknadót frá Kína á dögunumVísir/JóiK

Sem stendur sinnir Icelandair nær eingöngu fraktflutningum. Til stendur að breyta þremur Boeing 767 breiðþotum Icelandair tímabundið til að sinna hið minnsta 45 fraktflugferðum frá Sjanghæ í Kína til München í Þýskalandi. Fluttar verðar lækninga- og hjúkrunarvörur fyrir aðila í heilbrigðisþjónustu í Evrópu. Auk þess hyggst Icelandair fljúga nokkur flug frá Sjanghæ til Chicago í Bandaríkjunum með viðkomu á Íslandi.


Tengdar fréttir

Stjórnvöld bíða eftir hlutafjáraukningu Icelandair

Í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag kom fram að forsætisráðherra útilokar ekkert varðandi mögulega aðkomu ríkisins að Icelandair og ítrekar mikilvægi fyrirtækisins. Von sé á frekari aðgerðum enda séum við í miðjum storminum í dýpstu kreppu lýðveldissögunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×