Viðskipti erlent

Samdráttur í Þýskalandi óhjákvæmilegur

Samúel Karl Ólason skrifar
Forsvarsmenn fyrirtækja í Þýskalandi eru svartsýnir þessa dagana.
Forsvarsmenn fyrirtækja í Þýskalandi eru svartsýnir þessa dagana. EPA/FOCKE STRANGMANN

Hagkerfi Þýskalands, stærsta hagkerfi Evrópu, gæti dregist saman um allt að 5,4 prósent á þessu ári. Það er þó versta sviðsmynd ráðs hagfræðinga, sem ráðleggja ríkisstjórn landsins. Ráðið segir samdrátt þó óhjákvæmilegan. Ráðið spáir því að samdráttur verði um 2,8 prósent á árinu en þó gæti landsframleiðsla aukist um 3,7 prósent á næsta ári.

Spár ráðsins eru mismunandi eftir því hve lengi ástandið vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar munu vara. Verstu spárnar velta á því að aðgerðir vegna faraldursins verði í gildi fram yfir sumar og þannig fái landsframleiðsla ekki rúm til að jafna sig.

Í frétt Spiegel er haft eftir formanni ráðsins að erfitt sé að spá um framtíðina vegna þess hve flókið ástandið sé. Óvissa sé ríkjandi. Hins vegar væri nauðsynlegt að verja heilsu fólks og því fyrr sem hægt væri að sigrast á veirunni, því betra fyrir efnahag Þýskalands.

Þá hrósaði Feld ríkisstjórinni fyrir þær aðgerðir sem hefur verið gripið til.

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, segir að aðgerðir vegna faraldursins eins og samkomubönn og lokanir, verði ekki felldar niður fyrr en í fyrsta lagi þann 20. apríl.

Samkvæmt frétt Reuters segja forsvarsmenn eins af hverjum fimm fyrirtækjum Þýskalands að hætta sé á að fyrirtæki þeirra verði gjaldþrota vegna faraldursins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×