Borgarleikhúsið heldur áfram að bjóða upp á beint streymi í samkomubanninu.
Í kvöld klukkan 20 er komið að upptöku af sýningu á Mávinum eftir Anton Tsjékhov, einu þekktasta leikverki sögunnar. Sýningin var frumsýnd árið 2015 í Borgarleikhúsinu. „Stórbrotin sýning. Ljómandi samleikur undir stjórn spennandi leikstjóra,“ sagði í gagnrýni um sýninguna hér á Vísi.
Hægt er að horfa hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir, sem er á kerfum Vodafone og Símans og í Stöð 2 appinu.
Leikstjóri sýningarinnar var Yana Ross. „Þetta er hér og nú uppfærsla. Tímaleysið býr í textanum og átök eins og þar er að finna hafa alltaf verið og verða alltaf til staðar í lífinu. Þar af leiðandi er þessi uppfærsla afskaplega lókal og við ákváðum að vinna með íslenskar aðstæður,“ sagði Ross í viðtali á Vísi á sínum tíma sem lesa má hér.
Leikarar eru Björn Stefánsson, Hilmir Snær Guðnason, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Björn Thors, Halldóra Geirharðsdóttir, Waraporn Chanse og Guðrún Snæfríður Gísladóttir.