Einstakar hestamyndir Gígju enduðu á lúxushóteli og tískufatnaði Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 25. mars 2020 11:00 Gígja hefur róandi áhrif á hestana og eftir augnablik hætta þeir að taka eftir henni. Vísir/Hestalífið Ljósmyndarinn Gígja Einarsdóttir hefur síðustu ár fangað einstök augnablik af íslenska hestinum í sínu náttúrulega umhverfi. Myndir hennar hafa meðal annars birst á veggjum lúxushótela og fatnaði og vörum frá þekktum tískuvörumerkjum eins og H&M og Urban Outfitters. Telma Lucinda Tómasson kynnir áhorfendur fyrir Gígju í mannlífsþættinum Hestalífið. Frá lúxushóteli í Kasakstan.Aðsend mynd Hesturinn er einstaklega falleg og kraftmikil skepna og hefur heillað listamenn frá örófi alda. Hann er viðfang meðal annars í fornum hellaristum, teikningum frá miðöldum og óteljandi ljósmyndum, eftir að sú tækni kom til. Gígja er fjölhæfur ljósmyndari, en hefur einstaka hæfileika til að sjá hestinn í allri sinni fegurð. Hún er uppalin í sveit og hefur frá blautu barnsbeini rýnt í atferli í hrossastóði, á því mjög auðvelt með að ná trausti hestanna og nálgast þá. „Svo finnst mér gott að vera hjá þeim í svolítið langan tíma, þá gleyma þau mér bara og fara að gera sitt.“ Hún segir að hestana eiga margvísleg samskipti sín á milli og leiki sér mikið. „Mér finnst eiginlega best að vera bara í felum. Þau koma til mín, þefa af mér heilsa upp á mig og sjá að ég er ekkert að fara að smala þeim og það er allt í lagi með mig.“ Í þættinum fer hún yfir það hvernig hún nær góðum myndum af þessum fallegu og kraftmiklu skepnum. Hún ræðir einnig hvernig myndir frá henni enduðu á fimm stjörnu hóteli í fjarlægu landi. Þáttinn má finna í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Hestalífið - Gígja og Sigurgeir ljósmyndarar Ævintýratengdur áhugi En það er fleira en ljósmyndaáhuginn sem í gegnum árin hefur fengið Gígju til að eyða löngum stundum í hrossastóði. „Þetta er eins og að hlaða batteríin eða hugleiðsla eða eitthvað. Bara vera með þeim hérna. Bara yndislegt.“ Mynd/Gígja Einarsdóttir Við ræktun margra erlendra hestakynja eru einungis örfáir skilgreindir litir leyfðir, en í íslenska hrossastofninum er þvert á móti reynt að halda í fjölbreytileika lita í ræktunarstarfinu. Þetta hefur endurspeglast í ljósmyndum Gígju, en hún sér listina þó einnig verða til í einfaldleikanum. „Ég hef alltaf verið ótrúlega hrifin af gráum hestum. Ég hef alltaf heillast af þeim. Ég veit ekki alveg af hverju, en kannski er það eitthvað ævintýratengt eða eitthvað svoleiðis.“ Mynd/Gígja Einarsdóttir Myndir Gígju eru meðal annars á ION hótelinu á Nesjavöllum en einnig á hóteli á fjarlægari slóðum. „Það voru tveir menn sem höfðu samband við mig frá Kasakstan og þeir vildu kaupa myndir af mér á hótel. Þeir vildu hafa ljósa hesta, hvítan bakgrunn og eitthvað sem minnti á mongólska hestinn líka. Nú er bara íslenski hesturinn á hóteli í Kasakstan á fimm stjörnu geðveiku hóteli þannig að ég held bara áfram að taka myndir af þeim.“ Gígja Einarsdóttir fangar einstök augnablik af hestum. Mannlífsþátturinn Hestalífið birtist á Vísi og Stöð 2 Maraþon aðra hverja viku en með umsjón þáttar fer Telma Lucinda Tómasson. Þættirnir eru unnir fyrir Vísi í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Beit. Hestar Hestalífið Ljósmyndun Tengdar fréttir Gummi Ben nefndi hest í höfuðið á Simma Vill Telma Lucinda Tómasson náði að plata Gumma Ben til að gefa hestunum tækifæri, dýrum sem hann treysti alls ekki. Útkoman var stórskemmtileg. 17. mars 2020 11:01 Gummi Ben í fyrsta sinn á hestbaki: „Guð hjálpi mér“ Gummi Ben reyndi ítrekað að hætta við og átti andvökunætur áður en hann fór í fyrsta skiptið á hestbak. 10. mars 2020 11:00 Stórkostlegur misskilningur að hestamennska sé ekki íþrótt Ég veit alveg hvað þarf til að ná árangri. Af því þetta er alvöru íþrótt, segir Guðmundur landsliðsþjálfari um hestamennskuna. 29. febrúar 2020 11:00 Hestamennskan grefur sig djúpt inn í sálarlíf fólks Í dag fer í loftið hér á Vísi fyrsti þátturinn af Hestalífinu í umsjón Telmu Lucindu Tómasson. Í þessum mannlífsþáttum fá áhorfendur að heimsækja skemmtilegt hestafólk sem hefur frá mörgu að segja. 25. febrúar 2020 10:45 Mest lesið „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Lífið Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Tíska og hönnun Ragga Holm og Elma giftu sig Lífið Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Lífið Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper Lífið Hlaupadellan varð að fatamerki: „Ég er giftur götunni“ Tíska og hönnun Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Lífið „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Lífið „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Lífið Ása Ninna kveður Bylgjuna Lífið Fleiri fréttir Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Sjá meira
Ljósmyndarinn Gígja Einarsdóttir hefur síðustu ár fangað einstök augnablik af íslenska hestinum í sínu náttúrulega umhverfi. Myndir hennar hafa meðal annars birst á veggjum lúxushótela og fatnaði og vörum frá þekktum tískuvörumerkjum eins og H&M og Urban Outfitters. Telma Lucinda Tómasson kynnir áhorfendur fyrir Gígju í mannlífsþættinum Hestalífið. Frá lúxushóteli í Kasakstan.Aðsend mynd Hesturinn er einstaklega falleg og kraftmikil skepna og hefur heillað listamenn frá örófi alda. Hann er viðfang meðal annars í fornum hellaristum, teikningum frá miðöldum og óteljandi ljósmyndum, eftir að sú tækni kom til. Gígja er fjölhæfur ljósmyndari, en hefur einstaka hæfileika til að sjá hestinn í allri sinni fegurð. Hún er uppalin í sveit og hefur frá blautu barnsbeini rýnt í atferli í hrossastóði, á því mjög auðvelt með að ná trausti hestanna og nálgast þá. „Svo finnst mér gott að vera hjá þeim í svolítið langan tíma, þá gleyma þau mér bara og fara að gera sitt.“ Hún segir að hestana eiga margvísleg samskipti sín á milli og leiki sér mikið. „Mér finnst eiginlega best að vera bara í felum. Þau koma til mín, þefa af mér heilsa upp á mig og sjá að ég er ekkert að fara að smala þeim og það er allt í lagi með mig.“ Í þættinum fer hún yfir það hvernig hún nær góðum myndum af þessum fallegu og kraftmiklu skepnum. Hún ræðir einnig hvernig myndir frá henni enduðu á fimm stjörnu hóteli í fjarlægu landi. Þáttinn má finna í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Hestalífið - Gígja og Sigurgeir ljósmyndarar Ævintýratengdur áhugi En það er fleira en ljósmyndaáhuginn sem í gegnum árin hefur fengið Gígju til að eyða löngum stundum í hrossastóði. „Þetta er eins og að hlaða batteríin eða hugleiðsla eða eitthvað. Bara vera með þeim hérna. Bara yndislegt.“ Mynd/Gígja Einarsdóttir Við ræktun margra erlendra hestakynja eru einungis örfáir skilgreindir litir leyfðir, en í íslenska hrossastofninum er þvert á móti reynt að halda í fjölbreytileika lita í ræktunarstarfinu. Þetta hefur endurspeglast í ljósmyndum Gígju, en hún sér listina þó einnig verða til í einfaldleikanum. „Ég hef alltaf verið ótrúlega hrifin af gráum hestum. Ég hef alltaf heillast af þeim. Ég veit ekki alveg af hverju, en kannski er það eitthvað ævintýratengt eða eitthvað svoleiðis.“ Mynd/Gígja Einarsdóttir Myndir Gígju eru meðal annars á ION hótelinu á Nesjavöllum en einnig á hóteli á fjarlægari slóðum. „Það voru tveir menn sem höfðu samband við mig frá Kasakstan og þeir vildu kaupa myndir af mér á hótel. Þeir vildu hafa ljósa hesta, hvítan bakgrunn og eitthvað sem minnti á mongólska hestinn líka. Nú er bara íslenski hesturinn á hóteli í Kasakstan á fimm stjörnu geðveiku hóteli þannig að ég held bara áfram að taka myndir af þeim.“ Gígja Einarsdóttir fangar einstök augnablik af hestum. Mannlífsþátturinn Hestalífið birtist á Vísi og Stöð 2 Maraþon aðra hverja viku en með umsjón þáttar fer Telma Lucinda Tómasson. Þættirnir eru unnir fyrir Vísi í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Beit.
Mannlífsþátturinn Hestalífið birtist á Vísi og Stöð 2 Maraþon aðra hverja viku en með umsjón þáttar fer Telma Lucinda Tómasson. Þættirnir eru unnir fyrir Vísi í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Beit.
Hestar Hestalífið Ljósmyndun Tengdar fréttir Gummi Ben nefndi hest í höfuðið á Simma Vill Telma Lucinda Tómasson náði að plata Gumma Ben til að gefa hestunum tækifæri, dýrum sem hann treysti alls ekki. Útkoman var stórskemmtileg. 17. mars 2020 11:01 Gummi Ben í fyrsta sinn á hestbaki: „Guð hjálpi mér“ Gummi Ben reyndi ítrekað að hætta við og átti andvökunætur áður en hann fór í fyrsta skiptið á hestbak. 10. mars 2020 11:00 Stórkostlegur misskilningur að hestamennska sé ekki íþrótt Ég veit alveg hvað þarf til að ná árangri. Af því þetta er alvöru íþrótt, segir Guðmundur landsliðsþjálfari um hestamennskuna. 29. febrúar 2020 11:00 Hestamennskan grefur sig djúpt inn í sálarlíf fólks Í dag fer í loftið hér á Vísi fyrsti þátturinn af Hestalífinu í umsjón Telmu Lucindu Tómasson. Í þessum mannlífsþáttum fá áhorfendur að heimsækja skemmtilegt hestafólk sem hefur frá mörgu að segja. 25. febrúar 2020 10:45 Mest lesið „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Lífið Gervigreindarfyrirsæta í Vogue vekur ugg Tíska og hönnun Ragga Holm og Elma giftu sig Lífið Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Lífið Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper Lífið Hlaupadellan varð að fatamerki: „Ég er giftur götunni“ Tíska og hönnun Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Lífið „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Lífið „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Lífið Ása Ninna kveður Bylgjuna Lífið Fleiri fréttir Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Sjá meira
Gummi Ben nefndi hest í höfuðið á Simma Vill Telma Lucinda Tómasson náði að plata Gumma Ben til að gefa hestunum tækifæri, dýrum sem hann treysti alls ekki. Útkoman var stórskemmtileg. 17. mars 2020 11:01
Gummi Ben í fyrsta sinn á hestbaki: „Guð hjálpi mér“ Gummi Ben reyndi ítrekað að hætta við og átti andvökunætur áður en hann fór í fyrsta skiptið á hestbak. 10. mars 2020 11:00
Stórkostlegur misskilningur að hestamennska sé ekki íþrótt Ég veit alveg hvað þarf til að ná árangri. Af því þetta er alvöru íþrótt, segir Guðmundur landsliðsþjálfari um hestamennskuna. 29. febrúar 2020 11:00
Hestamennskan grefur sig djúpt inn í sálarlíf fólks Í dag fer í loftið hér á Vísi fyrsti þátturinn af Hestalífinu í umsjón Telmu Lucindu Tómasson. Í þessum mannlífsþáttum fá áhorfendur að heimsækja skemmtilegt hestafólk sem hefur frá mörgu að segja. 25. febrúar 2020 10:45