Lífið

Stórtónleikarnir Samkomubann í beinni á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Jónsson, Frikki Dór, Floni og GDRN eru meðal þeirra sem koma fram annað kvöld.
Jón Jónsson, Frikki Dór, Floni og GDRN eru meðal þeirra sem koma fram annað kvöld. Vísir

Annað kvöld fara fram stórtónleikar í Austurbæ við Snorrabraut og verða þeir í beinni á Vísi, Stöð 2 og Bylgjunni. Þar koma fram margir af vinsælustu tónlistarmönnum landsins og hefjast tónleikarnir klukkan 19:05.

Eðli málsins samkvæmt verða engir tónleikagestir í salnum og því verður hægt að horfa og hlusta á miðlum Sýnar. 

Tónleikarnir verða í opinni dagskrá á Stöð 2 en meðal þeirra sem koma fram þetta laugardagskvöldið eru Bríet, Friðrik Dór, GDRN, Jón Jónsson, Jói P. og Króli, Una Schram, Sturla Atlas og Flóni.

Bríet kom fram í Eldhúspartý FM957 í fyrra.Vísir/DaníelÞór





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.