Lífið

Létta landanum lífið í samkomubanni og sóttkví

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Hljóðfæraleikararnir Herdís Anna Jónsdóttir og Steef Van Oosterhout vilja létta landanum lífið.
Hljóðfæraleikararnir Herdís Anna Jónsdóttir og Steef Van Oosterhout vilja létta landanum lífið. Vísir/Sigurjón

Ýmsar menningarstofnanir bjóða uppá dagskrá á vefnum í samkomubanninu sem nú ríkir. Meðal þeirra er Sinfoníuhljómsveit Íslands sem hefur síðustu daga sent frá heimatónleikum hljóðfæraleikara á Facebooksíðu sinni. 

Hjónin Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef Van Oosterhout leiðari í Sinfoníuhljómsveit Íslands eru meðal þeirra sem hafa sent Íslendingum tóna úr stofunni heima. 

Þau eru einnig einnig einu meðlimirnir í Dúó Stemmu sem hefur skemmt börnum á öllum aldri um allt land. Herdís segir að Dúóið ætli einnig að bjóða uppá viðburði á netinu en vill ekki gefa upp hvað það er. 

„Það verður bara að koma í ljós,“ segir Herdís og hlær.

Í Borgarleikhúsinu er dagskrá streymt beint á Vísi en í kvöld klukkan átta hefst leiklestur á Bláskjá. 

Hjörtur Jóhannsson leikari og „streymir“ eins og hann vill láta kalla sig þessa dagana sér um dagskránna á netinu.

Við erum með dagskrá á netinu á hverjum degi þar sem fólkið kemst ekki til okkar þá förum við bara til þeirra. Ég er t.d. að lesa uppúr Tídægru og við reynum að vera með barnaefni, viðtöl og listamannaspjall.  Við viljum vera með fjölbreytta dagskrá. Það styttist í að þetta breytist í sjónvarpsstöð,“ segir Hjörtur kíminn. 

Hjörtur Jóhanns leikari og streymir sér um að kæta landsmenn frá Borgarleikhúsinu í kórónuveirufaraldrinum.Vísir/Sigurjón

Ég sé alveg fyrir mér að hérna séu að opnast nýjar dyr fyrir leikhúsið. Kannski verðum við með hlaðvörp og eitthvað fleira í framtíðinni,“ segir Hjörtur. 

Sjálfboðaliðar sem í voru félagar frá Landsbjörgu, Rauða krossinum og Samtökunum Pepp á Íslandi ásamt Fjölskylduhjálp Íslands fóru með matargjafir til fólks í dag en hjálparstofnanir þurftu að stöðva matargjafir eftir að samkomubann var sett á. 

Guðni Th. Jóhannesson foreti Íslands og þau Rósa Bragadóttir og Ásgeir Ásgeirsson sjálfboðaliðar sem sinntu matarúthlutunum í dag.Vísir/Sigurjón

Við erum fámenn en snúum smæðinni í styrk og stöndum saman á tímum sem þessum. Það er svo magnað,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sem mætti og hvatti sjálfboðaliðana áfram í dag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.