Næst á dagskrá hjá Borgó í beinni er annar lestur á skemmtisögu úr Tídægru eftir hinn ítalska Giovanni Boccaccio.
Hjörtur Jóhann Jónsson leikari les í dag og hefst flutningur klukkan 12. Í gær las Maríanna Clara Lúthersdóttir dramatúrg úr bókinni.
Tídægra, eða Decameron, er skrifuð í kjölfar þess að plágan mikla gekk yfir Flórens árið 1348. Yfir helmingur borgarbúa hafði fallið í valinn áður en yfir lauk og á rammasaga bókarinnar sér stað í farsóttinni miðri. Hópur ungs fólks ákveður að yfirgefa Flórens og flýja í sumarhöll fyrir utan bæinn með það fyrir augum að vera í einangrun þar til sóttin réni. Til að stytta sér stundir segja þau hvert öðru sögur – tíu sögur á dag í þá tíu daga sem þau dvelja í sumarhöllinni.
Þar sem Boccaccio sjálfur upplifði pláguna þykir Tídægra í senn vera ómetanleg heimild um lífið á tímum Svarta dauða sem og safn leikandi léttra og skemmtilegra smásagna - sem þó eru ekki án brodds því höfundurinn deilir á hræsni, kirkjuna og jafnvel kúgun kvenna.