Fjögurra marka jafntefli þegar Valencia heimsótti Barcelona Arnar Geir Halldórsson skrifar 19. desember 2020 17:17 Messi að skalla boltann í netið. vísir/Getty Barcelona og Valencia skildu jöfn að Nývangi þegar liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Gestirnir í Valencia komust yfir eftir hálftíma leik þegar Mouctar Diakhaby skoraði. Staðan var þó jöfn í leikhléi þar sem Lionel Messi jafnaði á fimmtu mínútu uppbótartíma en hann skallaði þá boltann í netið í kjölfarið af frákasti frá vítaspyrnu Messi sem var varin út í teiginn. Ronald Araujo kom Barcelona í forystu snemma í síðari hálfleik eða á 52.mínútu með góðu skoti úr vítateignum. Þeim entist þó forystan aðeins í rúman stundarfjórðung því Maxi Gomez jafnaði metin fyrir Valencia á 69.mínútu. Lokatölur 2-2 og Barcelona áfram í 5.sæti deildarinnar. Spænski boltinn
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn