„Við vildum koma þessu öllu undir sama hatt,“ segir Álfrún Pálsdóttir kynningarstjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs í samtali við Vísi.
Stuðningur við innlenda hönnun
„Markmiðið er að sýna hversu öflugt hönnunarsamfélagið er á Íslandi og við eigum svo mikið af flottum hönnuðum sem eru að búa til hluti og selja. Þetta endurspeglar svo vel fjölbreytnina og gróskuna í íslenskri hönnun, það er eitthvað fyrir alla.“
Á þessari nýju síðu er nú hægt að finna allt á sama stað og er verslununum skipt upp í nokkra flokka. Á listanum eru bæði búðir sem selja vörur frá ólíkum hönnuðum og einnig netverslanir. Sömuleiðis má finna beina tengla á verslanir hönnuða og heimasíður sem selja vörur.
„Sömuleiðis viljum við bara á þessum tímum, bæði því það er desember og það er árið 2020, þá er þarft framtak að líta okkur nær og styðja við innlenda hönnun og framleiðslu.“
Síðan er komin í loftið en enn eru að bætast verslanir á listann. Listinn er í stöðugri þróun og eru allir þeir sem selja íslenska hönnun og vilja vera á þessum lista hvattir til að senda línu á info@honnunarmidstod.is. Í sumar fór Miðstöð hönnunar og arkitektúr af stað með vefsíðu sem birtir fréttir og umfjallanir um hönnun hér á landi, bæði fyrir fjölmiðla og almenning.
Ákveðin hvatning til Íslendinga
„Með þessu erum við bæði að reyna að leiðbeina og einfalda fyrir almenning og aðra að finna þessar vörur.“
Álfrún segir að þetta sé kjörinn tími til að kynna sér þá fjölbreytni sem finna má innan íslenska hönnunarsamfélagsins. Hún segir að síðan hafi strax fengið góðar undirtektir, enda sé framsetningin einföld.
„Við viljum að þetta sé ákveðin hvatning líka, að fólk finni sér eitthvað á þessum lista. Það er svo ótrúlega fjölbreytt úrval til sem ekki endilega allir þekkja. Ég vona að fólk geti nýtt sér þetta núna í desember en líka bara allan ársins hring. Þessi síða á að endurspegla svolítið það sem er að gerast í hönnunarsamfélaginu hér á Íslandi.“