Veður

Lægir ekki að ráði fyrr en eftir hádegi á morgun

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vindaspáin fyrir klukkan 18 í dag.
Vindaspáin fyrir klukkan 18 í dag. Veðurstofa Íslands

Áfram eru veðurviðvaranir í gildi um land allt nema á höfuðborgarsvæðinu vegna norðanstorms. Á Suðausturlandi er appelsínugul viðvörun í gildi en annars staðar á landinu eru viðvaranir gular.

Í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að spáð sé norðanhvassviðri eða stormi með snjókomu eða éljum á norðurhelmingi landsins, einkum á Norðaustur- og Austurlandi.

Ekki mun lægja að ráði fyrr en eftir hádegi á morgun, föstudag, en þá herðir frostið á móti og er búist miklu kuldakasti.

Spáð er norðanstormi eða roki og öflugum vindhviðum undir Vatnajökli og í Mýrdal til hádegis á morgun.

Mjög varasamt ferðaveður er á þeim slóðum og í raun hættulegt að vera á ferðinni að því er segir á viðvörunarvef Veðurstofunnar. Hviður geta farið yfir 45 m/s með mögulegu sand- og grjótfoki.

„Búist er við norðan roki úti fyrir Norður- og Austurlandi. Stórstreymt er um þessar mundir þ.a. há ölduhæð og áhlaðandi getur valdið miklum ágangi sjávar við ströndina,“ segir í athugasemd veðurfræðings.

Á Suðurlandi geta hviður farið yfir 40 m/s undir Eyjafjöllum og í Mýrdal. Þá er varað við hviðum að 40 m/s við Faxaflóa. Á Austfjörðum geta hviður farið yfir 35 m/s.

Veðurhorfur á landinu:

Norðan 18-25 m/s, en hvassara í vindstrengjum sunnan Vatnajökuls. Snjókoma eða él og skafrenningur N- og A-lands, en annars úrkomulaust að kalla. Fer að draga úr vindi NV-til seint í kvöld. Frost 0 til 8 stig, mildast syðst.

Lægir á morgun, styttir upp og herðir frost. Norðlæg átt 3-13 m/s annað kvöld, hvassast A-til. Stöku él fyrir austan en þurrt og víða bjart annars staðar. Frost 2 til 12 stig, mildast við SA-ströndina.

Á föstudag:

Norðan 13-20 m/s, en hvassara í fyrstu SA-lands. Él á Norður- og Austurlandi, en annars víða bjartviðri. Lægir og styttir upp seinnipartinn, fyrst N-lands. Frost 3 til 14 stig, kaldast inn til landsins.

Á laugardag:

Hæg suðvestlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en líkur á stöku éljum við SV-ströndina. Frost víða 4 til 18 stig, mildast syðst.

Á sunnudag:

Suðaustan 3-10, hvassast við S-ströndina. Dálítil él við S- og V-ströndina, en annars bjartviðri. Dregur heldur úr frosti.

Á mánudag og þriðjudag:

Áfram hægar austlægar áttir með éljum á víð og dreif. Frost 0 til 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×