Veður

Fyrsti al­vöru norðan­áttar­kaflinn og hörku­frost í vændum

Atli Ísleifsson skrifar
Það verður kalt á landinu á morgun ef marka má spákort Veðurstofunnar eftir smá hlýindi í dag.
Það verður kalt á landinu á morgun ef marka má spákort Veðurstofunnar eftir smá hlýindi í dag. Veðurstofa Íslands

Útlit er fyrir hvassa suðvestanátt í dag og jafnvel storm á stöku stað. Yfirleitt verður hægari vindur norðvestantil á landinu. Þó má búast við skúrum eða slydduéljum, en að það stytti upp og rofi til norðaustan- og austanlands. Hitiinn verður á bilinu 2 til 7 stig.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að eftir daginn í dag skipti veðrið um gír og útlit sé fyrir að fyrsti alvöru norðanáttarkafli vetrarins sé væntanlegur á næstu dögum.

Búið er að gefa út gular viðvaranir víða um landið bæði dag og á morgun.

  • Suðurland: 1. desember 12:00-22:00
  • Faxaflói: 1. desember 12:00-22:00 og 2. desember 10:00-23:59
  • Breiðafjörður: 2. desember 5:00-23:59
  • Vestfirðir: 2. desember 1:00-23:59
  • Strandir og Norðurland vestra: 2. desember 9:00-23:59
  • Norðurland eystra: 1. desember 14:00-2. desember 2:00 og 2. desember 12:00-23:59
  • Austurland að Glettingi: 1. desember 16:00-2. desember 3:00 og 2. desember 14:00-23:59
  • Miðhálendið: 1. desember 12:02 – 2. desember 2:00
Gular viðvaranir eru og taka gildi á næstu klukkutímum.Veðurstofan



Herðir á frostinu

„Á morgun er semsagt útlit fyrir vaxandi norðanátt á landinu, víða hvassvðri eða stormur eftir hádegi. Á sunnanverðu landinu er gert ráð fyrir lítilli úrkomu, einungis dálitlum éljum á víð og dreif. Þó ber að nefna að þar sem laus snjór er á jörðu, mun hann fara af stað og mynda skafrenning. Á norðurhelmingi landsins má búast við snjókomu og gæti hún orðið í nægilegu magni til að tala megi um stórhríð með köflum á Norður- og Norðausturlandi.

Síðan gera spár ráð fyrir að norðanáttin haldi sama styrk á fimmtudag, en það herðir á frostinu þegar hrollkalt loft berst yfir okkur beint norðan úr Íshafinu. Ekki er gert ráð fyrir að norðanvindurinn gangi niður að gagni fyrr en eftir hádegi á föstudag og þá fer að stytta upp og létta til.

Eins og oft vill verða þegar lægir og léttir til eftir kalda norðanátt, þá nær frostið sér á strik og horfur eru á hægum vindi um helgina með hörkufrosti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Vaxandi norðanátt, víða 15-23 m/s síðdegis. Lítilsháttar él á sunnanverðu landinu. Snjókoma á norðurhelmingi landsins, sums staðar talsverð ofankoma á Norðurlandi. Kólnandi veður, frost 2 til 7 stig þegar líður á daginn.

Á fimmtudag: Norðan 15-23 með snjókomu eða éljum, en úrkomulítið sunnantil á landinu. Frost 3 til 9 stig.

Á föstudag: Norðan 13-20 með éljagangi á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Lægir og styttir upp síðdegis, fyrst vestast á landinu. Herðir á frosti.

Á laugardag: Hæg breytileg átt og víða bjartviðri. Frost 5 til 18 stig.

Á sunnudag og mánudag: Hæg breytileg átt og léttskýjað, en stöku él á sunnanverðu landinu. Kalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×