Sjö greindust með veiruna innanlands Atli Ísleifsson skrifar 17. nóvember 2020 10:55 Sex af þeim sjö sem greindust voru í sóttkví við greiningu. Vísir/Vilhelm
Sjö greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sex af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví, eða 86 prósent. Einn þeirra sem greindist í gær var utan sóttkvíar, eða 14 prósent. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Alls eru 57 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af fjórir á gjörgæslu. Í gær voru 59 á sjúkrahúsi og þrír á gjörgæslu. Tveir greindust á landamærum og er niðurstöðu mótefnamælingar er beðið í tilvikum beggja. 302 manns eru nú í einangrun, samanborið við 340 í gær. Þá eru 563 í sóttkví í dag, samanborið við 693 í gær. Þriðja bylgjan. Af þeim sjö sem greindust innanlands í gær greindust sex eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni, en einn eftir svokallaða sóttkvíar- og handahófsskimun. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 61,1 en var 66,8 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 9,0, en var 8,5 í gær. Nú hafa 5.215 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir ennfremur að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 25 nú látnir. Alls voru tekin 870 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 301 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 124 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun og 293 í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Innlent Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Erlent Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu Erlent Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Innlent Sextán flugferðum aflýst Innlent Þórður Snær afboðaði komu sína Innlent Kjóstu rétt á Vísi Innlent Fleiri fréttir Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Skýr mörk á milli hægri og vinstri Lýsa eftir konu með heilabilun Samherji lagði listamanninn Odee Myndband sýnir umfang skriðanna í Eyrarhlíð Fimm sveitarstjórnarfulltrúar í Strandabyggð beðist lausnar Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu Þinglok strax eftir helgina Glæný Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum Sammála um níkótínpúðana en ekki áfengissöluna Áfram séreign inn á lánin og ekkert kílómetragjald í bili Flateyringum ráðlagt að sjóða neysluvatn Maðurinn sem lögregla lýsti eftir er fundinn „Leið eins og ég hefði verið kýld í magann þegar ég las þetta“ „Nei, Áslaug Arna“ Sjá meira
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent