Liverpool vann í Hollandi á sjálfsmarki Anton Ingi Leifsson skrifar 21. október 2020 20:55 Púlarar fagna sjálfsmarkinu í kvöld sem tryggði þeim að endingu sigurinn. Alex Gottschalk/DeFodi Images Liverpool byrjar Meistaradeildina vel þetta tímabilið en þeir unnu 1-0 sigur á Ajax á útivelli í 1. umferð keppninnar í kvöld. Það voru einhverjar breytingar á liði Liverpool frá því um helgina en Virgil van Dijk er eins og kunnugt er á meiðslalistanum. Curtis Jones fékk tækifæri í byrjunarliðinu. TEAM NEWS Here s how we line-up for tonight s trip to @AFCAjax #AJALIV— Liverpool FC (@LFC) October 21, 2020 Það leit þó einungis eitt mark dagsins ljós í leiknum og það kom á 35. mínútu er Nicolas Tagliafico varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net. Ajax komst nálægt því að skora skömmu fyrir hlé en Fabinho bjargaði þá á marklínu. Liverpool fékk einnig tækifæri til að bæta við marki en Gini Wijnaldum fékk m.a. gott færi. Ekki urðu mörkin fleiri og lokatölur 1-0. Öflugur útisigur Liverpool sem fær danska liðið Midtjylland í heimsókn í næstu viku en Danirnir töpuðu 4-0 fyrir Atalanta í kvöld. YES, REDS! We start our @ChampionsLeague campaign with a win #UCL— Liverpool FC (@LFC) October 21, 2020 Meistaradeild Evrópu