Viggó næstmarkahæstur í Þýskalandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. október 2020 09:00 Viggó Kristjánsson í leik gegn Rhein-Neckar Löwen þar sem hann skoraði fimm mörk. getty/Marco Wolf
Viggó Kristjánsson hefur heldur betur farið vel af stað með nýja liðinu sínu, Stuttgart, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Eftir þrjár umferðir er Viggó næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 23 mörk, eða 7,7 mörk að meðaltali í leik. Sænski hornamaðurinn Niclas Ekberg hjá Kiel er markahæstur í þýsku deildinni með 27 mörk og hefur skorað fjórum mörkum meira en Viggó. Lasse Andersson, leikmaður Füchse Berlin, er í 3. sæti markalistans með 22 stig og Bjarki Már Elísson hjá Lemgo er í því fjórða með 21 mark ásamt Christoffer Rambo, leikmanni Minden. Bjarki varð markakóngur þýsku deildarinnar á síðasta tímabili. Viggó skoraði fimm mörk gegn Rhein-Neckar Löwen í 1. umferð deildarinnar, átta mörk gegn TuSEM Essen í 2. umferðinni og tíu mörk gegn Balingen-Weilstetten í þeirri þriðju. Seltirningurinn hefur skorað sex mörk af vítalínunni og er með frábæra skotnýtingu, eða 69,7 prósent. Eftir eitt ár í Danmörku og tvö í Austurríki gekk Viggó í raðir Leipzig fyrir síðasta tímabil. Hann stoppaði stutt við þar og kláraði síðasta tímabil með Wetzlar. Hann gekk svo í raðir Stuttgart í sumar. Stuttgart hefur farið vel af stað í vetur og er í 9. sæti þýsku deildarinnar með fjögur stig. Viggó lék með íslenska landsliðinu á EM í byrjun þessa árs og er greinilega staðráðinn í að vera áfram í íslenska hópnum sem fer á HM í Egyptalandi í janúar.
Þýski handboltinn Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira