Lífið

Kylie Jenner og Stormi baka hrekkjavökukökur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kylie Jenner og Stormi fóru á kostum í myndbandinu.
Kylie Jenner og Stormi fóru á kostum í myndbandinu.

Hrekkjavakan verður haldin hátíðlega 31. október og líklega verður hún með öðru sniði í ár og mikið til stafræn.

Bandaríkjamenn taka Hrekkjavökunni alvarlega og er því mikið skreytt og fjölmörg teiti haldin. Börn hafa í áraraðir síðan gengið í hús í ógnvekjandi búningum og fengið fyrir vikið sælgæti frá húsráðanda.

Athafnakonan Kylie Jenner gaf á dögunum út fallegt myndband þar sem hún reiðir fram hrekkjavökukökur ásamt dóttur sinni Stormi.

Á aðeins fjórum dögum hefur verið horft á myndbandið yfir tíu milljón sinnum á YouTube. Báðar voru þær klæddar í alveg eins náttföt og skemmtu sér konunglega eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.