Veiði

Ein flottustu veiðilok allra tíma

Karl Lúðvíksson skrifar
Ársæll með 98 sm lax úr Bergsnös
Ársæll með 98 sm lax úr Bergsnös Mynd: Árni Baldursson FB

Lokahollið í Stóru Laxá átti líklega það sem flestir telja vera ein glæsilegasta lokun laxveiðiár á Íslandi fyrr og síðar og þá sérstaklega lokadagurinn.

Enn einn stórlaxinn úr Stóru LaxáMynd: Árni Baldursson FB

Á lokadeginum var átta löxum yfir níutíu sentimetrum landað og þar af einum 101 sm og öðrum 103 sm sem er stærsti laxinn úr ánni í sumar og einn af tíu stærstu löxum sem hafa veiðst á landinu í sumar. Veiðistaðirnir sem voru að gefa þessa stórlaxa í ferðinni eru til dæmis Flatistrengur, Reykhólmi, Kóngsbakki og auðvitað Bergsnös sem er líklega einn af betri stórlaxa stöðum í haustveiði á landinu og er oftar en ekki nefndur á nafn á sama tíma og veiðistaðir eins og Hnausastrengur í Vatnsdalsá sem er líklega einn þekktasti stórlaxastaður landsins.

Friðjón í Veiðiflugum með 94 sm lax úr Flatastreng

Þetta er glæsilegur lokadagur í Stóru Laxá en breytir samt ekki þeirri staðreynd að í veiðitölum er þetta eitt lakasta sumar í ánni síðan 2007 þegar það veiddust aðeins 238 laxar í henni. Því skal samt ekki gleyma að Stóra Laxá rokkar upp og niður og meðalveiðin í ánni á árunum 1974 til 2008 er 313 laxar svo ef það er tekið mið af þeirri tölu er þetta sumar ekki jafn slæmt og margir reyna að gera það.






×