Sunna skein skært gegn Val: „Heldur betur búin að gefa í“ Sindri Sverrisson skrifar 29. september 2020 16:31 Sunna Jónsdóttir naut sín í botn gegn Val. MYND/STÖÐ 2 SPORT
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar hrósuðu Sunnu Jónsdóttur í hástert eftir framgöngu hennar í 23-22 sigri ÍBV gegn Val í Olís-deildinni. „Maður var farinn að kannast við hana aftur þegar leið á síðasta tímabil. Hún er heldur betur búin að gefa í og gjörsamlega kláraði þennan leik fyrir ÍBV. Ef hún hefði ekki verið í svona miklu stuði þá hefðu þær ekki unnið þennan leik, það er alveg á hreinu,“ sagði Þorgerður Anna Atladóttir. Sunna skoraði meðal annars tíu mörk í leiknum, úr 18 skotum, en var einnig afar sterk í vörninni: „Hún var rosaleg í þessum leik og það kom kafli í seinni hálfleik þar sem hún var gjörsamlega óstöðvandi – skoraði fjögur eða fimm mörk í röð. Hún er í lykilstöðu á báðum endum vallarins, frábær karakter og algjör toppklassa leikmaður,“ sagði Haraldur Þorvarðarson, og Þorgerður tók undir: „Hún er frábær í vörn og sókn, en líka yfirveguð og það er enginn asi í henni þó hún komi á fullri ferð þegar hún fer í gegn. Hún tekur skot fyrir utan, fintar sig í gegn, og gerir í raun allt. Birna og Hrafnhildur skora ekki síðustu 20 mínúturnar í leiknum, á meðan að Sunna tekur 4-5 í röð. Það kom ekkert frá neinum nema henni.“
Olís-deild kvenna ÍBV Seinni bylgjan Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira