Siggi Braga: Tók smá hárblásara Einar Kárason skrifar 12. september 2020 19:00 Sigurður Bragason Vísir/Vilhelm ,,
Við hentum þessu frá okkur,” sagði Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, eftir leik. ,,Hentum þessu gjörsamlega frá okkur. Síðustu 5 mínúturnar voru bara arfaslakar hjá okkur. Tæknifeilar, hræðilegt. Hentum boltanum yfir völlinn, ömurlegt. Ég er fúll yfir því að hafa tapað stigi,” sagði Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, eftir 21-21 jafntefli gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna í dag. ,,Svolítil einstaklingsmistök og óðagot. Eins og ég segi, tæknifeilar og við köstum boltanum tvisvar, þrisvar yfir völlinn sem við eigum samt að nýta. Þú átt að geta skorað yfir völlinn. Þetta voru einstaklingsmistök, hjá öllum.” Olís-deild kvenna fór af stað í dag og ljóst var að leikurinn í Eyjum yrði hörkuleikur enda tvö sterk lið. ,,Maður hefur oft séð haustbrag yfir leikjunum á þessum tíma en mér fannst þetta bara gott. Leikir í mars hjá þessum liðum og svo æfingaleikir. KA/Þór er bara komið með geggjað lið og flotta þjálfara þannig að þær verða bara flottar og eru flottar. Ég held að flestir hafi skemmt sér þó að ég sé alveg að fara að tryllast hérna.” ,,Ég sé bara HK á laugardaginn,” sagði Sigurður spurður út í framhaldið. ,,Ég tók smá hárblásara áðan eftir þetta en svo er bara HK á laugardaginn og ég sé bara fyrir mér skemmtilegan vetur. Ekkert Covid og bara allir að hafa gaman. Ég sé bara yndislegan vetur. Hlakka til jólanna.” ,,Ég hef trú á Víði, Þórólfi og Ölmu. Toppfólk. Við hlýðum þeim og þá verður þetta ekkert vesen,” sagði Sigurður að lokum.
Olís-deild kvenna ÍBV Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sjá meira