Lífið

Steindi fór með Kristján Má í vesta­leið­angur: „Þetta er einhver della í þér“

Sylvía Hall skrifar
Steindi og Kristján Már taka sig vel út í vestunum.
Steindi og Kristján Már taka sig vel út í vestunum. Stöð 2

Steindi Jr. ákvað að gleðja fréttamanninn Kristján Má Unnarsson með smá verslunarleiðangri nú á dögunum. Eftir að hafa fylgst með þáttagerð Kristjáns fannst honum liggja beinast við að þeir félagarnir færu að skoða vesti, enda hefur Kristján iðulega nýtt sér þau við ýmis tilefni.

Þrátt fyrir að hugmyndin hafi í upphafi virkað skotheld hafði Kristján sínar efasemdir. „Þetta er einhver della í þér, ég elska ekkert vesti,“ sagði Kristján.

„Það er búið að gera grín að mér í heilan áratug út af þessu vesti.“

Það má þó segja að Steindi hafi náð að vinna Kristján yfir á sitt band og úr varð hinn skemmtilegasti leiðangur. Innslagið, sem var sýnt í Haustpartýi Stöðvar 2, má sjá hér að neðan.

Klippa: Kristján Már og Steindi skoða vesti





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.