Elín Metta fékk ekki bæði mörkin skráð á sig fyrir norðan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. ágúst 2020 11:00 Elín Metta Jensen í leik á móti Breiðabliki en í baráttunni við hana eru Blikarnir Agla María Albertsdóttir og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir. Vísir/Daníel Þór
Berglind Björg Þorvaldsdóttir er enn með eins marks forskot á Elínu Mettu Jensen í baráttunni um gullskóinn í Pepsi Max deild kvenna. Flestir héldu að Elín Metta Jensen hefði jafnað við Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur á toppi markalistans þegar hún skoraði bæði mörk Valsliðsins i sigri á Þór/KA á Akureyri á föstudagskvöldið. Nú hefur dómari leiksins skilað inn sinni skýrslu og hann skráir fyrra markið ekki á Elínu Mettu. Markið er skráð sem sjálfsmark hjá markverðinum Lauren Amie Allen. Markið kom eftir hornspyrnu Hallberu Guðnýju Gísladóttur. Elín Metta Jensen virtist ná að stinga sér fram fyrir Lauren Amie Allen og skalla boltann í markið. Það er hins vegar mat dómara leiksins að Lauren Amie Allen hafði í raun slegið boltann í sitt eigið mark áður en Elín Metta náði í hann. Elín Metta fagnaði markinu eins og það væri hennar og allir fjölmiðlar skrifuðu markið á hana. Það sést hins vegar ekki vel í sjónvarpsupptökunni hvor þeirra á lokasnertinguna á boltann. Elín Metta Jensen er því bara með ellefu mörk og því einu marki á eftir Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur sem hefur skorað tólf mörk. Elín Metta hefur spilað ellefu leiki en Berglind Björg er aðeins búin að spila níu leiki. Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur ekki spilað í tveimur síðustu umferðum Pepsi Max deildar kvenna. Í þeim fyrri missti hún af leik á móti Selfossi af því að hún var í sóttkví og þá var leik Blika um helgina frestað þar sem mótherjarnir í KR eru allar í sóttkví.
Pepsi Max-deild kvenna Valur Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Fleiri fréttir Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira