Lengjudeildin: Magni með sinn fyrsta sigur og Þórsarar fóru létt með Þróttara Ísak Hallmundarson skrifar 29. ágúst 2020 17:59 Magnaðir Magnamenn unnu sinn fyrsta leik í deildinni í dag. vísir/ernir
Tveimur síðustu leikjum 12. umferðar Lengjudeildar karla er lokið. Magni frá Grenivík vann fyrsta sigurleik sinn í sumar þegar liðið sótti þrjú stig á Fáskrúðsfjörð. Þór frá Akureyri vann sannfærandi sigur á Þrótti. Alvaro Montejo kom Þórsurum yfir gegn Þrótturum með marki úr vítaspyrnu eftir innan við 90 sekúndna leik. Staðan versnaði enn frekar fyrir Þrótt á 26. mínútu þegar Daði Bergsson fékk rauða spjaldið og Þróttarar þurftu því að spila manni færri það sem eftir lifði leiks. Staðan í hálfleik 1-0. Á 46. mínútu kom Sölvi Sverrisson Þór í 2-0 og Alvaro Montejo skoraði annað mark sitt í leiknum og innsiglaði 3-0 sigur Þórs á 57. mínútu. Á Fáskrúðsfirði tóku Leiknismenn á móti Magna. Stefán Ómar Magnússon kom heimamönnum í Leikni yfir á 23. mínútu en aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Tómas Örn Arnarson fyrir Magnamenn. Kairo Edwards-John skoraði úr vítaspyrnu fyrir Magna á 36. mínútu áður en Ásgeir Páll Magnússon hjá Leikni fékk að líta á rauða spjaldið á 40. mínútu. Leiknir fékk víti undir lok fyrri hálfleiks og hefði getað jafnað leikinn en Daniel Garcia Blanco brenndi af vítinu. Louis Aaron Wardle kom Magna í 3-1 á 80. mínútu og urðu það lokatölur, fyrsti sigur Magnamanna í sumar staðreynd. Þór er í 5. sæti með 20 stig, Leiknir F. er í 10. sæti með tíu stig, Þróttur í 11. sæti með sjö stig og Magni er í neðsta sætinu með fimm stig eftir leikina í dag. Stöðuna í deildinni má sjá hér.
Lengjudeildin Þór Akureyri Þróttur Reykjavík Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira