Maðurinn var á áttræðisaldri og hafði sýnt einkenni sýkingar undanfarna daga. Konan hringdi eftir aðstoð um leið og andlátið bar að, tveir sjúkraflutningamenn reyndu endurlífgun en án árangurs. Að henni lokinni tóku þeir sitthvort sýnið, annað úr konunni og hitt úr hinum látna, áður en þeir voru sjálfir sendir í sóttkví.
Bæjarstjóri Borghetto Santo Spirito segir í samtali við fjölmiðla að jú, konan hefur vissuleg mátt dvelja með líkinu í rúman sólarhring. Vonir standa til að hægt verði að sækja það síðar í dag.
„Því miður þá eru þetta einfaldlega verkferlar sem við verðum að fylgja,“ segir bæjarstjórinn Giancarlo Canepa. Hann segir að eiginmaðurinn hafi neitað að verða við beiðni um að leggjast inn á sjúkrastofnun þegar hann fór að sýna einkenni. „Hefði hann gert það þá hefði þessi staða ekki komið upp,“ segir bæjarstjórinn.
Hann lýsir stöðu konunnar sem martröð. „Ég á erfitt með að finna réttu orðin til að lýsa þessum hryllingi. Ég finn til með konunni og ættingjum hennar í þessari súrrealísku stöðu.“ Bæjarstjórinn segist hafa talað við konuna í síma, hún hafi verið í öngum sínum og ekki vitað hvernig hún ætti að haga sér.
Konan hefur til þessa ekki sýnt einkenni sýkingar. Komi hins vegar í ljós að hún sé jafnframt smituð af kórónuveirunni má hún vænta þess að þurfa dvelja lengur í sóttkví.
Angistarvein af svölunum
Ítalska sjónvarpsstöðin IVG.IT ræddi við nágranna fólksins sem sagðist vera á varðbergi vegna málsins. Það væri óneitanlega óþægilegt að hugsa til þess að kórónuveiran hefði dregið einhvern til dauða í næsta húsi. Hugur hans væri þó hjá nágrannakonu sinni, sem enginn gæti hlúð að á þessum erfiðu tímum. Það hafi verið óbærilegt að heyra hana kalla á hjálp af svölum sínum.Ítölsk stjórnvöld kynntu hertar aðgerðir til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar á mánudagskvöld. Á Ítalíu ríkir nú algjört útgöngubann, fjöldasamkomur bannaðar og samkomuhúsum lokað. Þar hafa greinst rúmlega 10 þúsund smit sem dregið hafa rúmlega 600 til dauða.