Upplifði gríðarlega mikla skömm eftir skilnaðinn Stefán Árni Pálsson skrifar 3. mars 2020 14:30 Gunnar Valdimarsson fór í gegnum skilnað eftir átta ára samband. vísir/vilhelm
Gunnar Valdimarsson er helst þekktur fyrir hæfileika sína á sviðið húðflúra. Hann hefur flúrað nokkra íslenska landsliðsmenn og fleiri þekkta. Saga Gunnars er aftur á móti mögnuð og hefur hann þurft að glíma við áföll á sinni lífsleið. Gunnar er gestur vikunnar í Einkalífinu en þar opnar hann sig um foreldramissi og skilnað. Árið 2017 gekk Gunnar í gegnum skilnað við barnsmóður sína rétt eftir að móðir hans hafði látist eftir baráttu við krabbamein. Gunnar segist hafa upplifað gríðarlega mikla skömm eftir skilnaðinn. „Við vorum búin að vera saman í átta ár og mér fannst ég vera fyrstur í vinahópnum sem var að skilja. Á þessum tveimur árum hef ég séð aðra vini mína skilja og ég er alltaf fyrstur til að hringja og segjast vera til staðar, því það gerði enginn fyrir mig og ég man hvað mér leið eins og ég væri alveg einn,“ segir Gunnar. Móðir Gunnars var þarna nýlátin og faðir hans lést þegar hann var sautján ára. „Ég man að fjölskylda hennar stóða alveg með henni og ég skil það vel í dag. En ég man hvað mér fannst það pirrandi. Ég var alveg einn eftir. Þetta var hrikalega erfitt að það voru augnablik þarna sem ég var nánast búinn að gefa upp. Að eiga börn bjargaði mér og að sjá myndir af þeim upp á vegg, því ég elska börnin mín svo mikið. Maður sér engan tilgang í neinu og langar helst til þess að hverfa. Ég segi ekki að mig hafi langað að kála mér en manni langaði helst til þess að vera ekki til.“ Gunnar skammaðist sín gríðarlega þegar hann fór í gegnum skilnaðinn. „Þetta var sterk höfnunartilfinning og við sem mannfólk erum ekki góð að taka við slíku. Ég man að ég skammaðist mín gríðarlega og ef það er einhvern þarna úti sem er að skilja þá er enginn ástæða fyrir því að skammast sín fyrir það.“ Í þættinum hér að ofan ræðir Gunnar einnig um húðflúraferil sinn og sérstakt samband sem á með íslenskum landsliðsmönnum, um skömmina sem fylgdi skilnaðinum, um erfitt samband sitt við föður sinn, um lífið í Noregi í dag þar sem hann elur börnin sín tvö upp með barnsmóður sinni og kærustu hennar, um ást sína á tónlist en hann stofnaði á dögunum sveitina Gunnar the fifth sem er tilvísun í ítrekaðan misskilning varðandi nafn hans erlendis og Gunnar ræðir um margt fleira í þættinum.
Einkalífið Tengdar fréttir „Lífið er ekki sanngjarnt“ Fyrirlesarinn Alda Karen Hjaltalín hefur vekið mikla athygli fyrir fyrirlestra sína undanfarin ár og þá aðallega fyrir fyrirlestraröðina Life Masterclass. 23. febrúar 2020 10:00 Er alls engin glanspía "Að vera kona fótboltamanns er oft glansmynd og glamúrlíf og allt þetta en ég er bara alls ekki þar,“ segir athafnarkonan Kristbjörg Jónasdóttir sem býr í Katar ásamt eiginmanni sínum Aroni Einari Gunnarssyni landsliðsfyrirliða. 13. febrúar 2020 11:30 „Ástarsorg er viðbjóður“ Lína Birgitta Camilla Sigurðardóttir hefur komið víða við síðastliðin ár en hún sló fyrst í gegn á bloggsíðu sinni og síðar meir á sínum samfélagsmiðlum. 5. desember 2019 11:30 Það var kominn tími á nýjan kafla í mínu lífi Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal hefur verið í bransanum í um tuttugu ár og hefur gjörsamlega slegið í gegn á sínu sviði. Auddi er nýorðinn faðir og er hann gestur Einkalífsins í þessari viku. 12. desember 2019 11:15 Mest lesið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Lífið „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Fleiri fréttir Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Sjá meira
„Lífið er ekki sanngjarnt“ Fyrirlesarinn Alda Karen Hjaltalín hefur vekið mikla athygli fyrir fyrirlestra sína undanfarin ár og þá aðallega fyrir fyrirlestraröðina Life Masterclass. 23. febrúar 2020 10:00
Er alls engin glanspía "Að vera kona fótboltamanns er oft glansmynd og glamúrlíf og allt þetta en ég er bara alls ekki þar,“ segir athafnarkonan Kristbjörg Jónasdóttir sem býr í Katar ásamt eiginmanni sínum Aroni Einari Gunnarssyni landsliðsfyrirliða. 13. febrúar 2020 11:30
„Ástarsorg er viðbjóður“ Lína Birgitta Camilla Sigurðardóttir hefur komið víða við síðastliðin ár en hún sló fyrst í gegn á bloggsíðu sinni og síðar meir á sínum samfélagsmiðlum. 5. desember 2019 11:30
Það var kominn tími á nýjan kafla í mínu lífi Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal hefur verið í bransanum í um tuttugu ár og hefur gjörsamlega slegið í gegn á sínu sviði. Auddi er nýorðinn faðir og er hann gestur Einkalífsins í þessari viku. 12. desember 2019 11:15