Real Madrid heimsótti Real Betis í síðasta leik dagsins í spænsku úrvalsdeildinni og þurftu Madridingar sigur til að endurheimta toppsæti deildarinnar sem Börsungar hrifsuðu til sín í gær með 1-0 sigri á Real Sociedad.
Það blés ekki byrlega fyrir gestina því brasilíski varnarmaðurinn Sidnei kom Betis í forystu með þrumufleyg.
Madridingar voru fljótir að svara fyrir sig með marki úr vítaspyrnu sem dæmd var á Sidnei í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Karim Benzema fór á vítapunktinn og skoraði örugglega.
Benzema gerði sig sekan um slæm mistök á 82.mínútu sem gerði Cristian Tello kleift að komast einn gegn Thibaut Courtois. Það nýtti hann sér til að skora sigurmark leiksins. Lokatölur 2-1 fyrir Real Betis og er Barcelona því enn með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar.
