Ákall um aðstoð við 48 milljónir kvenna og stúlkna Heimsljós kynnir 7. febrúar 2020 14:45 UNFPA
Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) birti í gær ákall til alþjóðasamfélagsins um þörf fyrir rúmlega 87 milljarða króna framlag til að bregðast við brýnni neyð í tengslum við kyn- og frjósemisréttindi 48 milljóna kvenna, stúlkna og ungmenna. Í þeim hópi eru 4 milljónir barnshafandi kvenna á hamfarasvæðum í 57 þjóðríkjum, ýmist vegna vopnaðra átaka eða náttúruhamfara. Í ákallinu – sem kallast UNFPA´s Humanitarian Action Overview – er því lýst hvernig konur og stúlkur glíma við einstæðan vanda á hamfarasvæðum, ekki síst með tilliti til fylgikvilla á meðgöngu og við fæðingu sem geta orðið banvænir, og aukinnar hættu á að verða fyrir kynbundnu ofbeldi. Mannfjöldasjóðurinn segir í skýrslunni að á heimsvísu deyi margar konur á hamfarasvæðum í tengslum við meðgöngu og fæðingu, eða um helmingur allra kvenna sem látast af barnsförum. UNFPA hyggst í framhaldi af ákallinu veita lífsbjargandi þjónustu á sviði kyn- og frjósemisréttinda, berjast gegn kynbundnu ofbeldi og veita sálfélagslegan og andlegan stuðning þar sem neyðin er mest. „Það er dýrkeypt fyrir konur og stelpur að vera í miðju átaka sem þær áttu engan þátt í að valda. Tímabært er að forgangsraða með því að setja réttindi þeirra, öryggi og virðingu í öndvegi í öllum mannúðaraðgerðum. Konur hætta ekki að verða barshafandi og eignast börn þótt hamfarir verði og við verðum að veita þeim þá þjónustu og þann stuðning sem þær þurfa,“ segir Natalia Kanem framkvæmdastjóri UNFPA. Á þessu ári stendur heimurinn frammi fyrir gífurlegum áskorunum í mannúðarmálum: einn af hverjum 45 jarðarbúum býr á hamfarasvæðum. Talið er á þessari stundu þurfi rúmlega 168 milljónir manna á mannúðaraðstoð að halda. Mannfjöldasjóðurinn er meðal annars að störfum í Bangladess, Venesúela, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Suður-Súdan. Á síðasta ári veitti sjóðurinn 19 milljónum einstaklinga aðstoð í 64 þjóðríkjum. Utanríkisráðuneytið styrkir starfsemi UNFPA, meðal annars með framlagi til verkefna í Sýrlandi, Jemen og Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, auk þess sem íslensk stjórnvöld hafa um árabil veitt framlög til sameiginlegs verkefnis sjóðsins og UNICEF í baráttunni gegn limlestingum á kynfærum kvenna og stúlkna.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Segir vopnahlé í höfn Erlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Innlent Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Innlent Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Erlent Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Innlent Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug Innlent