Thomas Markle, faðir Meghan Markle hertogaynju af Sussex, segist eiga erfiða lífsreynslu að baki og að Meghan og Harry Bretaprins, eiginmaður hennar, eigi að bæta sér hana upp. Þetta kom fram í máli hans í heimildarmynd sem sýnd var í gær.
Faðir Meghan hefur verið sannkallaður steinn í götu hertogaynjunnar síðan kastljós breskra fjölmiðla hóf að beinast að henni. Hann hefur ítrekað rætt samband sitt við dóttur sína á opinskáan og óvæginn hátt en þau hafa ekki talast við síðan hún giftist Harry í maí árið 2018.
Sjá einnig: Meghan Markle tjáir sig um föður sinn
Ummæli Thomasar sem nú eru til umfjöllunar eru höfð eftir honum í heimildarmynd sem sýnd var á Channel 5 í breska sjónvarpinu í gærkvöldi.
„Þegar hér er komið sögu þá skulda þau mér. Konungsfjölskyldan skuldar mér. Harry skuldar mér, Meghan skuldar mér. Mér ætti að vera endurgoldið fyrir það sem ég hef gengið í gegnum,“ segir Thomas um samband sitt við Meghan í myndinni. Þá sé kominn tími til að Meghan „hugsi um pabba.“

Þá kvað Thomas fjölmiðlaumfjöllun um hann hefði verið ósanngjörn og að hann hefði samþykkt að koma fram í heimildarmyndinni til að gera hreint fyrir sínum dyrum. „Vegna þess að ég vil að allir viti að þessir ómerkilegu hlutir sem hafa verið sagðir eiga ekki við um mig.“
„Ég vil að Harry og Meghan sjá þessa upptöku og viti að þetta er ekki sanngjarnt,“ bætti hann við.
Þá kvað hann það jafnframt sennilegt að hann myndi aldrei hitta Meghan og Harry aftur. Greint hefur verið frá því að Thomas gæti borið vitni gegn Meghan í málaferlum hennar og Harrys gegn breska dagblaðinu The Mail on Sunday.
Hér að neðan má sjá klippu úr heimildarmyndinni sem birt var um helgina. Þar segir Thomas að Harry og Meghan hafi með ákvörðun sinni að stíga til hliðar „lítillækkað“ konungsfjölskylduna og gert hana að „Walmart-verslun með kórónu“.