Sænskir Samar lögðu sænska ríkið eftir áralanga deilu um veiðiréttindi Atli Ísleifsson skrifar 23. janúar 2020 14:02 Svæðið sem um ræðir er um 5.500 ferkílómetrar og er að finna milli Kiruna og Gällivare. Getty
Sænski samabærinn Girjas hafði í morgun betur gegn sænska ríkinu eftir að Hæstiréttur Svíþjóðar kvað upp sinn dóm í deilumáli um veiðiréttindi sem staðið hefur í mörg ár. Samkvæmt dómnum geta Samar veitt fisk og villt dýr án aðkomu sænska ríkisins að veiðinni. Vísaði Hæstiréttur landsins í hefðarrétt og að Samar hafi stundað þar veiðar svo öldum skiptir. „Þetta er stórkostlegt. Þetta er ótrúlegt. Þú verður að bíða stundarkorn,“ sagði Jörgen Jonsson, fyrrverandi leiðtogi sambands sænskra Sama, við sænska fjölmiðla eftir að niðurstaðan lá fyrir. Samkvæmt dómnum á samabærinn einn réttindin til skotveiða og fiskveiða á svæðinu sem um ræðir. Niðurstaða dómara í málinu var einróma. Málið hefur staðið allt frá árinu 2009 þegar Girjas höfðaði mál á hendur sænska ríkisins. Með málinu vildu Samar endurheimta veiðiréttindin á umræddu svæði eftir að sænska ríkið opnaði á veiðar fyrir almenning á fjöllum árið 1993. Svæðið sem um ræðir er um 5.500 ferkílómetrar og er að finna milli Kiruna og Gällivare.
Norðurslóðir Svíþjóð Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Sjá meira