Sjá ekki fram á að opna vegi fyrir umferð fyrr en á morgun Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 14. janúar 2020 14:58 Enn eru Flateyrarvegur og vegurinn á milli Súðavíkur og Ísafjarðar lokaðir vegna snjóflóðahættu. Vísir/SAMMI
Enn geisar norðaustan stormur á Vestfjörðum með skafrenningi og éljagangi. Skyggni er víðast hvar slæmt og ekki hefur náðst að opna marga fjallvegi í umdæminu. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi á norðanverðum Vestfjörðum og hættustig á Ísafirði. Enn eru Flateyrarvegur og vegurinn á milli Súðavíkur og Ísafjarðar lokaðir vegna snjóflóðahættu. Lögreglan á Vestfjörðum býst ekki við að opna vegina fyrir umferð fyrr en á morgun. Raunar er víðast hvar lokað eða ófært á norðanverðum Vestfjörðum. Ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands réði starfsmönnum Terra á Ísafirði og Hampiðjunnar frá því að vera í húsnæði fyrirtækjanna. Eins hefur þótt öruggara að hafa sorpmótttökuna í Funa í Skutulsfirði lokaða. Þá var íbúum á einum sveitabæ í Bolungarvík ráðlagt að dvelja á öruggari stað meðan ástandið varir. Frá því á föstudag hefur meira og minna verið lokað fyrir umferð um Flateyrarveg. Fjöldi íbúa á Flateyri, þar sem fannfergi er þegar gríðarlegt, er fastur heima hjá sér og nú er svo komið að borið hefur á vöruskorti. Katrín María Gísladóttir, kennari á Flateyri sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að íbúar á Flateyri hafi fyrir helgi búið sig vel undir óveðrið og að flestir hafi ráðist í stórinnkaup á föstudag. Ófærð og lokanir hafi þó varið mun lengur en íbúar hafi almennt reiknað með. Björgunarsveitin hefur komið fólki á milli staða og nauðsynjavörum til fólksins. Katrín segir samheldni þorpsbúa lykilatriði á tímum sem þessum.
Samgöngur Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira