Spilar vonandi betur á Íslandi en hann gerði á móti Íslandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2020 15:00 Tevin Falzon í vörn á móti Hilmari Smára Henningssyni í leiknum á Smáþjóðaleiknum. Mynd/KKÍ
Njarðvíkingar hafa væntanlega horft framhjá skelfilegri frammistöðu Tevin Falzon, í landsleik á móti hálfgerðu varaliði Íslands á Smáþjóðaleikunum í fyrra, þegar þeir sömdu við hann á dögunum. Tevin Falzon er annar af tveimur nýjum erlendu leikmönnum Njarðvíkurliðsins á nýju ári en hinn er Litháinn Aurimas Majauskas. Tevin Falzon spilaði tæpar 26 mínútur á móti Íslandi í 76-80 tapi á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi í lok maí á síðasta ári en frammistaða hans í þessum leik var ekki upp á marga fiska. Tevin Falzon skoraði aðeins 3 stig í leiknum þar sem hann hitti aðeins úr 1 af 9 skotum utan af velli og klúðraði 5 af 6 vítaskotum sínum. Hann var einnig með 5 tapaða bolta í leiknum Framlag Falzon í leiknum var síðan upp á -5 og Malta tapaði þeim mínútum sem hann spilaði með heilum 22 stigum. Það þýðir að Maltverjar unnu með 18 stigum þær tæpu fimmtán mínútur sem hann sat á bekknum. Það var allt aðra sögu að segja af AaronFalzon, bróður Tevin, en hann var frábær í þessum leik. AaronFalzon skoraði nefnilega 33 stig, hitti úr sjö þriggja stiga skotum og var með 30 framlagsstig. Njarðvíkingarnir Elvar Már Friðriksson og Kristinn Pálsson voru hins vegar mjög flottir í þessum leik og skoruðu saman 50 stig í leiknum. Elvar 33 og Kristinn 17.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira