Besta ár olíusjóðsins, óx um 4,7 milljónir kr. á hvern íbúa Kristján Már Unnarsson skrifar 3. janúar 2020 11:11 Vinnslupallurinn Heiðrún í eigu Equinor, ein af mörgum undirstöðum norska olíusjóðsins. Mynd/Harald Pettersen, Equinor.
Norski olíusjóðurinn hefur aldrei í sögunni verið jafn stór og aldrei vaxið jafn mikið eins og á nýliðnu ári. Heildareignir sjóðsins námu í loks árs um 10.500 milljörðum norskra króna, samkvæmt frétt norska vefmiðilsins e24. Fjárhæðin jafngildir nærri 150 þúsund milljörðum íslenskra króna. Sjóðurinn óx um 1.794 milljarða norskra króna á árinu, sem jafngildir 25 þúsund milljörðum íslenskra króna. Á hvern hinna 5,3 milljóna íbúa Noregs þýðir þetta verðmætaaukningu upp á 335 þúsund norskar krónur, eða sem nemur nærri 4,7 milljónum íslenskra. Virðisaukinn á hverja fjögurra manna fjölskyldu í Noregi á síðasta ári jafngildir 18,7 milljónum íslenskra króna. Norski olíusjóðurinn er stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu í heiminum. Væri heildareignum sjóðsins deilt niður á íbúa Noregs kæmu um 1,9 milljónir norskra króna í hlut hvers einstaklings, jafngildi 26,5 milljóna íslenskra. Olíusjóðurinn var stofnaður af norska ríkinu árið 1990 til að ávaxta hagnaðinn af olíulindum Norðmanna. Sjóðurinn hefur nýtt olíugróðann til að fjárfesta í verðbréfum um allan heim og á núna hlutabréf í yfir níuþúsund fyrirtækjum í 73 löndum. Við fjárfestingar fylgir sjóðurinn siðareglum, sem hafa meðal annars leitt til þess að hann hefur losað sig við hlutabréf fyrirtækja í tóbaksiðnaði og kjarnorkuvopnaframleiðslu en einnig fyrirtækja sem tengjast mannréttindabrotum og alvarlegum umhverfisspjöllum.
Bensín og olía Norðurslóðir Noregur Tengdar fréttir Olíuboranir aukast hvergi meira en hjá Norðmönnum Olíufélög hafa ekki borað meira í lögsögu Noregs frá olíuverðfallinu árið 2014. Engin önnur þjóð hefur aukið olíuleit meira en Norðmenn á þessu ári. 16. október 2019 09:33 Fimmtíu ár frá upphafi norska olíuævintýrisins Það var á Þorláksmessu árið 1969 sem ráðamenn Phillips-olíufélagsins hringdu í norska iðnaðarráðuneytið og tilkynntu um að þeir hefðu fundið olíulind á Ekofisk-svæðinu í Norðursjó. 24. desember 2019 12:32 10.000.000.000.000 norskar krónur nú í norska olíusjóðnum 23 ár eru nú liðin frá stofnun norska olíusjóðsins. 25. október 2019 11:05 Skrifar undir loftlagsmarkmið og stóreykur olíuleit á sama tíma Norðmenn eru að stórauka olíuleit í Barentshafi á sama tíma og forsætisráðherra þeirra undirritar yfirlýsingar í Reykjavík um aðgerðir í loftlagsmálum. 31. ágúst 2019 23:12 Nýjustu olíulindir taldar tryggja auðlegð Noregs næstu áratugi Norðmenn hófu um helgina að dæla olíu upp af Johan Sverdrup-svæðinu, en þar eru einhverjar verðmætustu olíulindir sem fundist hafa í lögsögu Noregs. 7. október 2019 20:27 Mest lesið Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Atvinnulíf Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Olíuboranir aukast hvergi meira en hjá Norðmönnum Olíufélög hafa ekki borað meira í lögsögu Noregs frá olíuverðfallinu árið 2014. Engin önnur þjóð hefur aukið olíuleit meira en Norðmenn á þessu ári. 16. október 2019 09:33
Fimmtíu ár frá upphafi norska olíuævintýrisins Það var á Þorláksmessu árið 1969 sem ráðamenn Phillips-olíufélagsins hringdu í norska iðnaðarráðuneytið og tilkynntu um að þeir hefðu fundið olíulind á Ekofisk-svæðinu í Norðursjó. 24. desember 2019 12:32
10.000.000.000.000 norskar krónur nú í norska olíusjóðnum 23 ár eru nú liðin frá stofnun norska olíusjóðsins. 25. október 2019 11:05
Skrifar undir loftlagsmarkmið og stóreykur olíuleit á sama tíma Norðmenn eru að stórauka olíuleit í Barentshafi á sama tíma og forsætisráðherra þeirra undirritar yfirlýsingar í Reykjavík um aðgerðir í loftlagsmálum. 31. ágúst 2019 23:12
Nýjustu olíulindir taldar tryggja auðlegð Noregs næstu áratugi Norðmenn hófu um helgina að dæla olíu upp af Johan Sverdrup-svæðinu, en þar eru einhverjar verðmætustu olíulindir sem fundist hafa í lögsögu Noregs. 7. október 2019 20:27