Reiknað með að líbanska ríkisstjórnin segi af sér vegna sprengingarinnar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 10. ágúst 2020 15:47 Miðpunktur sprengingarinnar. AP Photo/Hussein Malla
Búist er við því að ríkisstjórn Líbanon muni segja af sér síðar í dag, innan við viku frá því að gríðarstór sprenging lagði hluta Beirút, höfuðborgar landsins, í rúst. CNN og Sky News greina frá og hafa eftir heimildarmönnum innan líbanska stjórnkerfisins. Þrír ráðherrar og sjö þingmenn hafa þegar sagt af sér vegna sprengingarinnar, sem varð minnst 160 að bana. Sem stendur er áætlað að um 6000 manns hafi særst í sprengingunni og að á fjórða hundrað þúsund hafi misst heimili sín eða hafist við í löskuðum byggingum. Þannig eru þúsundir íbúða ýmist glugga- eða hurðalausar eftir sprenginguna. Mikil pólitísk ólga er jafnframt í landinu eftir sprenginguna, sem talin er til marks um opinbera vanrækslu og sinnuleysi. Þannig hefur verið mótmælt í Beirút síðustu daga. Sprengingin varð í vöruhúsi þar sem verið var að geyma ammóníum nítrat sem notað er í áburð og sprengiefni. Búist er við því að Hassan Diab, forsætisráðherra Líbanon, sem komst til valda í desember síðastliðinn muni segja af sér síðar í dag, ásamt öðrum ráðherrum sem þegar hafa ekki gert það.
Líbanon Sprenging í Beirút Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira