Bale gæti farið frá Real Madrid á láni Ísak Hallmundarson skrifar 9. ágúst 2020 12:00 Bale hefur þurft að sitja mikið á varamannabekknum síðasta árið. getty/Denis Doyle
Walesverjinn Gareth Bale hefur ekki átt sjö daganna sæla hjá Real Madrid síðasta árið. Hann virðist ekki hafa náð að aðlagast lífinu hjá Spánarmeisturunum þrátt fyrir að hafa verið í sjö ár hjá félaginu og virðist hafa meiri áhuga á að spila golf heldur en að spila fótbolta. Bale neitaði að ferðast með Madrídarliðinu til Manchester um helgina í leik gegn Manchester City í Meistaradeildinni þar sem hann taldi engar líkur á að hann fengi að spila. Á sama tíma og liðsfélagar hans ferðuðust til Manchesterborgar sást Bale úti á golfvelli á Spáni. Bale hefur verið orðaður frá Real í sumarglugganum undanfarin ár en það hefur ekki tekist að finna nýtt lið handa honum. Nú er sagt að lausnin á þessu máli gæti verið fundin, en hann gæti farið á láni frá Real og Madrídarliðið myndi borga hluta af himinháum launum hans. Vandamál Bale hafa einmitt snúist um launin, hann er sagður vera með 600.000 pund á viku í Madrid og vill ekki taka á sig launalækkun til að spila annarsstaðar. Umboðsmaður hans hefur áður sagt að Bale muni ekki fara neitt en það eru enn tvö ár eftir af samningnum hans hjá Real og því gætu báðir aðilar þurft að finna lausn á málinu, í ljósi þess að Bale virðist ekki vera að fara spila neitt hlutverk með liðinu undir stjórn Zinedine Zidane.
Spænski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira