Innlent

Íslensk erfðagreining boðar þrjá hópa í skimun

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Vísir/vilhelm

Íslensk erfðagreining vinnur nú aftur að skimun einstaklinga fyrir COVID-19 í samvinnu við sóttvarnalækni. Þrír hópar eru boðaðir í skimunina; einstaklingar í sóttkví, fólk sem tengist einstaklingum í einangrun og handahófskennt úrtak. Skimun fer fram í Turninum í Kópavogi.

Í tilkynningu á vef landlæknisembættisins segir að tilgangur skimunarinnar sé að kanna útbreiðslu veirunnar hér á landi.

„[…] svo hægt sé að meta þörf fyrir frekari aðgerðir. Mögulega verður einnig hægt að rekja uppruna smitanna sem nú eru í gangi.“

Eftirfarandi þrír hópar munu fá boð í skimun ÍE:

  • Einstaklingar í sóttkví eftir að hafa verið í samskiptum við einstaklinga sem greindust með veiruna nú nýlega. Fólk á landsbyggðinni í þessari stöðu fær leiðbeiningar um hvar og hvenær það geti farið í sýnatöku hjá heilsugæslunni.
  • Fólk sem tengist einstaklingum í einangrun á einhvern hátt, sem ákveðið var að þyrftu þó ekki að fara í sóttkví, til dæmis, ef talsverður tími var frá samskiptum við þann smitaða.
  • Handahófskennt úrtak á þeim svæðum þar sem sem smit hafa komið upp undanfarið.

Fólk fær boð um þátttöku með textaskilaboðum. Þar koma fram upplýsingar um vefslóð sem notuð er til að skrá sig í sýnatöku. Við skráningu fær þátttakandi ítarlegar upplýsingar um hvar sýnatakan fer fram. Sóttvarnalæknir hvetur alla sem fá boð frá Íslenskri erfðagreiningu til að taka þátt og vera með í skimuninni.

„Athugið að einstaklingar í sóttkví mega ekki fara inn í húsnæði Þjónustumiðstöðvar rannsóknarverkefna í Turninum, heldur eru sýni tekin fyrir utan eins og hjá einstaklingum með einkenni COVID-19 hjá heilsugæslunni. Mikilvægt er að hafa í huga að neikvætt sýni hjá einstaklingi í sóttkví vegna tengsla við þekkt smit verður ekki til þess að aflétta sóttkví.

Afar mikilvægt er að einstaklingar sem hafa farið í skimun og fengið neikvæða niðurstöðu hafi samband við heilsugæslu eða Læknavaktina ef einkenni koma fram sem geta bent til COVID-19.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×