Sérhannaði VW bíllinn hennar Söru er með 300 hestöfl Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júlí 2020 08:30 Sara Sigmundsdóttir sótti nýja bílinn sinn í umboðið í gær. Mynd/Instagram
CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir gerði samning við Volkswagen umboðið í miðjum kórónuveirufaraldri og hluti af þessum samningi var að fá sérhannaðan bíl. Sara er nú komin með lyklana í hendurnar. Sara Sigmundsdóttir var valin til að vera sendiherra Volkswagen R bílsins í vor. Sara var valin af því að hún þykir vera mjög góð fyrirmynd góðra kosta eins og að hafa gott úthald en geta einnig tekist á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. „Ég er fyrsta manneskjan í CrossFit til að fá svona risafyrirtæki til að styrkja mig og vera sendiherra fyrir Volkswagen. Þetta er svakalegt,“ sagði Sara Sigmundsdóttir eftir að hún gerði samninginn sinn. „Mér finnst þetta ekki vera ég og er ennþá bara í skýjunum yfir þessu. Ég er sú fyrsta til að fá bílastyrktaraðila í CrossFit heiminum,“ sagði Sara. Það var í apríl og í gær sótti hún bílinn sem var hluti af samningnum. View this post on Instagram The day has arrived. My custom made @vwr T-ROC R ?? is here and I just got back home from picking it up. It s everything I hoped for and more?? Apart from being absolutely beautiful it is also the most powerful car that I have ever driven. It is 300 horsepower but yet it is so light and easy to handle. It s perfect for my lifestyle and it is perfect for the rugged landscapes here in Iceland. It s 4wd and a bit taller than most regular cars so once the winter comes there will be nothing to worry about either. Look forward to the coming weeks where I am planning to do many different outdoor activities, some of which that can only be reached pretty bad dirt roads. In this car - no problem! #trocr #volkswagenr #beautifullystrong #vwr #igotthepower A post shared by Sara Sigmundsdo´ttir (@sarasigmunds) on Jul 15, 2020 at 12:47pm PDT „Sérhannaði Volkswagen T-ROC R bílinn minn er kominn og ég var að koma frá því að sækja hann. Hann er allt sem ég vonaðist eftir og meira,“ skrifaði Sara á Instagram síðuna sína. „Fyrir utan að vera rosalega fallegur þá er þetta einnig kraftmesti bíllinn sem ég keyrt. Hann er með 300 hestafla vél en samt svo léttur og auðveldur í akstri. Þetta er fullkominn bíll fyrir minn lífsstíl og hann er líka fullkomin fyrir hið harðgerða landslag hér á Íslandi,“ sagði Sara. „Hann er með drif á öllum hjólum og er aðeins hærri en venjulegir bílar. Þegar veturinn kemur hingað þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af neinu heldur,“ sagði Sara. „Ég hlakka til komandi vikna þar sem ég hef planað að eyða miklum tíma utandyra. Á suma staðina er aðeins hægt að koma með því að keyra slæma malarvegi. Það verður ekkert vandamál fyrir mig á þessum bíl,“ sagði Sara. Það er spurning hvort fleiri vilji nú fá svona bíl eins og Sara ekur og þá hlýtur að vera nóg að biðja um Söru bílinn í umboðinu.
CrossFit Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Golf Fleiri fréttir Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Stærsta stjarnan vill breyta hjólreiðadagatalinu vegna mikils hita Tekinn við króatíska landsliðinu á ný Hættir vegna höfuðmeiðsla og áhrifa þeirra á andlega heilsu hans Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Hilmir fljótur að finna skotskóna í Tékklandi Häcken selur Fanneyju Ingu til Vålerenga Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Breyttu nafninu á flugvél norska liðsins í „Ro Ro Ro Ro Airlines“ Sárt tap fyrir Króatíu Valsmenn í vandræðum og óvænt félagaskipti United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Segist ekki hafa verið meiddur fyrir 69 sekúndna bardagann Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Langar að taka pásu frá landsliðinu Freyr sáttur eftir draumabyrjun: „Finn fyrir gleði og létti“ Villa að stela Manzambi af Newcastle Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjá meira