Erlent

Herða aðgerðir vegna faraldursins í Asíu og Ástralíu

Kjartan Kjartansson skrifar
Grímuklæddir gestir Disneyland-skemmtigarðsins í Hong Kong. Honum verður lokað frá og með morgundeginum vegna fjölgunar nýrra smita í borgríkinu.
Grímuklæddir gestir Disneyland-skemmtigarðsins í Hong Kong. Honum verður lokað frá og með morgundeginum vegna fjölgunar nýrra smita í borgríkinu. Vísir/EPA

Stjórnvöld í Ástralíu og nokkrum Asíuríkjum hafa hert á aðgerðum til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar á nýjan leik af ótta við að fjölgun smita undanfarið sé upphafið að annarri bylgju faraldursins. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin varar við því að faraldurinn eigi eftir að versna grípi ríki ekki til strangra varúðarráðstafana.

Í Ástralíu hefur verið hætt við áform um að leyfa ferðalög á milli ríkja innanlands. Í Queensland var tekin upp tveggja vikna sóttkví fyrir fólk sem hefur verið á tveimur svæðum í vestanverðum úthverfum Sydney, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Í Nýja Suður-Wales var komið á fjöldatakmörkunum á krám eftir að hópsýking kom upp á stóru hóteli í suðvestanverðri Sydney. Melbourne er nú í annarri viku sex vikna útgöngubanns.

Tiltölulega fá smit greindust í Hong Kong í upphafi faraldursins en þar taka ströngustu reglur um félagsforðun til þessa gildi á miðnætti. Þar greindust 52 ný tilfelli í gær, þar á meðal 41 innanlandssmit. Disneyland-skemmtigarðinum í borgríkinu verður lokað frá morgundeginum.

Allt kapp er nú lagt á smitrakningu í Japan eftir að tuttugu manns sem voru á leiksýningu greindust smitaðir, þar á meðal leikarar. Yfirvöld reyna nú að hafa uppi á um 800 manns sem voru á sýningunni. Þrátt fyrir það ætla stjórnvöld að halda sig við áform um að slaka á takmörkunum.

Á Filippseyjum fjölgar nýjum smitum meir en nokkurs staðar annars staðar í Suðaustur-Asíu. Útgöngubanni hefur verið komið aftur á í hluta höfuðborgarinnar Manila þar sem um 250.000 manns búa. Ólíklegt er að slakað verði á takmörkunum annars staðar í borginni í bráð.

Alls hafa nú um þrettán milljónir manna smitast af nýju afbrigði kórónuveiru í heiminum. Af þeim hefur um hálf milljón manna látið lífið. Í sumum ríkjum hefur faraldurinn færst í aukana aftur undanfarna daga og vikur.

„Leyfið mér að tala hreint út, of mörg ríki eru á rangri leið, veiran er ennþá óvinur númer eitt,“ sagði Tedros Ghabreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, í gær.


Tengdar fréttir

Undirbúa rannsókn á upptökum faraldursins í Kína

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur sent tvo sérfræðinga til Kína til að leggja drög að rannsókn á upptökum heimsfaraldurs nýs afbrigðis kórónuveiru sem hefur orðið meira en hálfri milljón manna að bana. Faraldurinn er enn í vexti víða í Bandaríkjunum, miðpunkti faraldursins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×