Nóg af laxi en aðstæður krefjandi Karl Lúðvíksson skrifar 11. júlí 2020 09:41 Lax þreyttur í Norðurá Mynd / Trausti Hafliðason
Veiðin í Norðurá síðustu tvær vikur hefur verið nokkuð krefjandi þar sem aðstæðurnar eru ekki alveg eins og þær eru bestar. Það hefur verið bæði bjart, þurrt og vestanátt og þegar þetta leggst allt á eitt er þetta mjög krefjandi á veiðimenn en alls ekkert ómögulegt. "Það er búið að vera mikið sólskin sem hækkaði hitastigið í ánni og við þessar aðstæður er takan erfið. Okkur hefur samt tekist að bjarga vöktunum með því að nota smáflugur og eins og alltaf eru það gæduðu stangirnar sem veiða yfirleitt best við þessi skilyrði" sagði Þorsteinn Stefánsson yfirleiðsögumaður við Norðurá í samtali við Veiðivísi í morgun. Veiðin í Straumunum hefur verið góð en sá fiskur sem fer þar um er á leiðinni upp í Norðurá en dokar oft við þegar aðstæður eru honum ekki í hag við Straumana. Um leið og áinn kólnar skilyrði vera laxinum í hag tekur hann sprettinn upp í Norðurá.
Stangveiði Mest lesið Stefnir í þurrkasumar í laxveiðiánum Veiði 103 sm stórlax af Hrauni Veiði Blanda komin í góðann gír Veiði Góð laxveiði í Þjórsá Veiði Saga stangveiða: Fnjóská - hin dásamlega afrétt Veiði Síðustu dagar Köldukvíslar framundan Veiði Hlíðarvatn er að komast í gang Veiði Urriðafoss með bestu veiði á stöng Veiði Hljóðlát aðkoma besta byrjunin Veiði Mokveiðin heldur áfram í Elliðaánum Veiði