Átján stiga hiti í dag Stefán Ó. Jónsson skrifar 30. júní 2020 07:00 Heitast verður á Vesturlandi og norðvesturhorninu í dag. veðurstofa íslands
Austfirðingar mega búa sig undir að sjá lítið til sólar í vikunni ef marka má spákort Veðurstofunnar. Meðfram austur- og suðurströndinni verður jafnframt svalara heldur en í öðrum landshlutum, þar sem jafnvel má búast við 18 stiga hita í dag. Útlit er fyrir hægan vind á landinu í dag, á bilinu 3 til 8 metra á sekúndu, en þó gæti orðið örlítið hvassara við suðausturströndina og um landið norðvestanvert fram eftir degi. Á sunnan- og vestanverðu landinu má búast við súld, einkum seinnipartinn. Norðaustanlands verður einnig skýjað, en þó þurrt að kalla. Í öðrum landshlutum sést víða vel til sólar að sögn veðurfræðings. Hitin þar verður á bilinu 12 til 18 stig, en svalara með suður- og austurströndinni þar sem hitinn verður um 7 til 13 stig. „Meinhægum norðlægum áttum er spáð síðari hluta vikunnar með lítilsháttar vætu hér og hvar, en bjartviðri þess á milli. Víða verður áfram milt í veðri, en svalast um landið austanvert, þar sem sólarstundir þessarar viku gætu orðið öllu færri en annars staðar á landinu,“ að sögn veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðan 3-8 m/s og víða léttskýjað, en skýjað við A-ströndina og stöku skúrir S-lands. Hiti frá 7 stigum á annesjum NA-lands, að 17 stigum í innsveitum á SV-landi. Á föstudag: Norðaustanátt og bjart með köflum, en víða skýjað og úrkomulítið við ströndina S- og A-verða. Líkur á vætu við Faxaflóa. Hiti 6 til 14 stig, mildast á SV-lands. Á laugardag, sunnudag og mánudag: Norðlæg átt, skýjað með köflum og dálítil væta af og til. Kólnar í veðri N-lands
Veður Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fleiri fréttir „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Sjá meira