Viðskipti erlent

Umfangsmiklar breytingar á heimaskjám síma Apple

Samúel Karl Ólason skrifar
Tim Cook, forstjóri Apple á ráðstefnunni í gær.
Tim Cook, forstjóri Apple á ráðstefnunni í gær. AP/Brooks Kraft

Apple kynnti í gær ýmsar nýjungar á árlegri þróunarráðstefnu fyrirtækisins. Sú nýjung sem hefur þó vakið hvað mesta athygli er iOS 14, nýtt stýrikerfi Apple fyrir snjallsíma.

Ráðstefnunni, WWDC, var frestað vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar og fer alfarið fram á netinu. Hún hófst á kynningu Apple þar sem nýja stýrikerfið var kynnt. Sambærilegar útgáfur stýrikerfa annarra tækja Apple voru sömuleiðis kynntar auk nýrra örgjörva fyrir tölvur Apple.

Hér að neðan má sjá myndband þar sem MacWorld er búið að taka saman það helsta sem fram kom í kynningunni í gær.

Samkvæmt tilkynningu frá Apple eru ákveðin tímamót fólgin í iOS 14 og segir að um stærstu breytingu á heimaskjá síma Apple frá upphafi sé að ræða. Notendur munu nú geta gert umtalsverðar breytingar á heimaskjánum og stilla hann eftir eigin þörfum.

Endurbætur hafa verið gerðar á sendingum skilaboða til vina og samskipti í gegnum FaceTime og hefðbundin símtöl. Notendur iPhone munu nú geta horft á myndband eða tekið símtal á meðan þeir nota annað app.

Þá mun stýrikerfið bjóða upp á nýja möguleika varðandi þýðingu

Apple stefnir á að halda opna betaprufu í lok júlí og gefa svo iOS 14 út í haust. Líklegt þykir að það verði gert samhliða útgáfu iPhone 12.

Hér má sjá stutt myndband um helstu breytingarnar sem fylgja iOS 14.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×