Einn greindist með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn hér á landi samkvæmt nýjum tölum á Covid.is sem birtar voru um klukkan 13. Fólki í sóttkví fjölgar örlítið milli sólarhringa.
Staðfest smit eru því, líkt og í gær, 1.806, en einungis tvö virkt smit er þá í landinu nú.
Í gær voru tekin á sjötta hundrað sýni - 70 hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og 464 hjá Íslenskri erfðagreiningu og var eitt þeirra jákvætt. Alls hafa nú verið tekin 61.025 sýni frá upphafi faraldursins.
Enginn liggur inni á sjúkrahúsi með Covid-19 þessa stundina og hafa 1.794 náð bata. Fólk í sóttkví er nú 1.114, en alls hafa 20.635 lokið sóttkví.
Tíu hafa látist af völdum úr veirunnar.