Eitt af því skemmtilegasta sem Covid-19 leiddi af sér eru ævintýralega góðir veitingastaðir á hjólum sem nú fara í öll úthverfi Reykjavíkur og miðborgina, og svo í framhaldinu út á landsbyggðina. Matur í hæsta gæðaflokki færður í öll hverfi bæjarins.
Fjölbreytnin er mikil og hafa margir veitingastaðir slegið þvílíkt í gegn. Rótgrónir veitingastaðir hafa snúið vörn í sókn og bjóða nú uppá að tekinn sé matur heim og einnig heimsendingarþjónustu.
Vala Matt fór fyrir Ísland í dag í sælkeraleiðangur og skoðaði dýrindis matarvagna og veitingastaði í nýju umhverfi heimsfaraldurs.
Facebook-síðurnar Reykjavík Street Food og Matarvagnar og Götubiti á Íslandi hafa að geyma helstu upplýsingar um ferðir vagnanna. Róbert Aron Magnússon segir framtakið hafa byrjað í lok mars.
„Þegar samkomubannið skall á, þá sáum við tækifæri að fólk væri kannski ekki að treysta út og kannski mátti það ekki, þannig við hugsuðum: Okei, hvað getum við gert? Jú, við getum kannski komið með matinn til fólksins,“ segi Róbert.
Það hafi því verið ákveðið að fara í helstu hverfi bæjarins, en í upphafi tóku þrír matarvagnar þátt. Nú eru vagnarnir tíu og ellefti á leiðinni.
„Við erum búin að ferðast núna um þrjátíu hverfi víðs vegar um Reykjavíkursvæðið og fara í nágrannasveitarfélögin í kring. Það er búið að vera frábært – geggjaðar viðtökur.“
Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.