Lífið

Sóli Hólm sló í gegn sem Inga Sæland

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sóli Hólm sem Inga Sæland
Sóli Hólm sem Inga Sæland Stöð 2

Föstudagskvöld með Gumma Ben var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi og eins og vanalega voru leikin skemmtiatriði í þættinum. Gestir þáttarins voru Jónas Sigurðsson, Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Halldór Gylfason.

Sóli Hólm var með innslag að venju og að þessu sinni endurlék hann umtalað viðtal Einars Þorsteinssonar við Ingu Sæland í Kastljósi í síðustu viku. Viðtalið vakti mikla athygli og var umræðuefni á samfélagsmiðlum í kjölfarið en mörgum þótti Einar ganga full harkalega fram í viðtalinu við Ingu.

Sóli endurskapaði viðtalið fræga með aðstoð leikarans Þorvalds Davíðs Kristjánssonar sem brá sér í gervi Einars.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.